fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

ÍA fékk undanþágu vegna meiðsla – Kaupa Jón Sölva frá Breiðablik

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 10:29

Jón Sölvi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnufélag ÍA hefur náð samkomulagi við Breiðablik um varanleg félagaskipti Jóns Sölva Símonarsonar til félagsins. Jón Sölvi, sem er fæddur árið 2007, hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍA.

Jón Sölva ættu Skagamenn að þekkja vel en Jón Sölvi var á mála hjá liðinu á síðasta tímabili, þá á láni frá Breiðablik. Jón Sölvi á að baki 12 landsleiki fyrir U19 ára landslið Íslands og 7 landsleiki fyrir U17 ára landslið Íslands. Koma hans styrkir leikmannahóp ÍA fyrir verkefnin framundan, auk þess sem félagið sér mikil tækifæri í áframhaldandi þróun hans á komandi árum.

ÍA hefur fengið samþykkta undanþágu frá KSÍ vegna félagaskipta utan félagaskiptaglugga og hefur Jón Sölvi þegar fengið leikheimild með liðinu. Hann verður því löglegur með ÍA í leiknum gegn ÍBV í kvöld.

Árni Marinó Einarsson markvörður liðsins meiddist gegn Þór á dögunum og verður frá næstu vikurnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna

Er sögð vera fallegasta kona í heimi – Vekur athygli eftir að hún vann kosninguna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Staðfest hvenær og hvernig sigurhátíð Arsenal verður

Staðfest hvenær og hvernig sigurhátíð Arsenal verður
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns