fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

UEFA boðar miklar breytingar sem getur haft áhrif á íslenska landsliðið

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UEFA hefur kynnt stórar breytingar á undankeppni stórmóta sem munu taka gildi fyrir Heimsmeistaramótið árið 2030.

Nýja fyrirkomulagið á að draga úr leikjum þar sem stórþjóðir mæta mjög veikum andstæðingum, eins og England gegn San Marino eða Andorra, og gera undankeppnina meira spennandi fyrir stuðningsmenn.

Samkvæmt nýja kerfinu verður 36 sterkustu landsliðum Evrópu skipt í þrjá tólf liða riðla í svokallaðri „League 1“. Önnur landslið fara í „League 2“.

Liðin í efstu deildinni munu spila sex undankeppnisleiki gegn sex mismunandi andstæðingum, svipað og nýja fyrirkomulagið í Meistaradeild Evrópu. Tvö lið verða úr efsta styrkleikaflokki, tvö úr miðflokki og tvö úr neðri flokki.

Bestu þjóðirnar tryggja sér sjálfkrafa sæti á HM en önnur lið munu þurfa að fara í umspil.

UEFA hefur ekki enn staðfest hversu mörg lið fara beint áfram en kerfið verður endanlega samþykkt í september eftir frekari útfærslur.

Aleksander Ceferin forseti UEFA segir breytingarnar eiga að bæta samkeppnina og gera leikina áhugaverðari. „Nýja kerfið mun draga úr tilgangslausum leikjum og skapa meira jafnvægi,“ sagði Ceferin.

Heimsmeistaramótið 2030 verður haldið á Spáni, í Portúgal og Marokkó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Stuðningsmenn brjálaðir eftir dóm gærdagsins – Vilja fá endurgreiðslu fyrir bókuðum ferðalögum

Stuðningsmenn brjálaðir eftir dóm gærdagsins – Vilja fá endurgreiðslu fyrir bókuðum ferðalögum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan
433Sport
Í gær

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?
433Sport
Í gær

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns