fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 12:08

Elliði Vignisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Takk fyrir túkall, er gamalt gott íslenskt orðatiltæki sem stundum er notað þegar einhver gerir eitthvað sem er ekki sérstaklega verðmætt eða gott. Ekki hvað síst ef það gegnur fram af fólki. Hagstjórnin hér á landi verðskuldar eitt gott: „Takk fyrir túkall”.

Þetta segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, í pistli á heimasíðu sinni. Þar gerir hann stýrivaxtahækkun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í morgun að umtalsefni, en eins og komið hefur fram hækkaði bankinn vexti um 0,25%. Eru stýrivextir, vextir á sjö daga bundnum innlánum, því 7,75%.

Sjá einnig: „Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“

Sitt sýnist hverjum um þessa hækkun en Elliði bendir á að fyrir suma hljómi þessi hækkun eins og lítið tæknilegt skref í hagstjórn.

„Fyrir íslensk heimili er þetta hins vegar mjög raunverulegt. Fyrir þau þýðir þetta að afborganir af húsnæðislánum hækkuðu um fimm- til sexþúsund milljónir á ári. Fimm til sex þúsund milljónir teknar úr vösum fjölskyldna, ungs fólks og þeirra sem eru að reyna að halda heimilisbókhaldinu saman,“ segir Elliði.

Sjá einnig: Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“

Hann segir í pistli sínum að ákvarðanir Seðlabankans séu afleiðing hagstjórnarinnar.

„Ríkisstjórn sem heldur áfram að dæla eldsneyti á hagkerfið með auknum útgjöldum og þenslu gerir bankanum erfiðara fyrir að ná niður verðbólgu án vaxtahækkana. Seðlabankinn er hitamælirinn í pottinum sem hið opinbera kyndir undir,“ segir hann.

Elliði segir að á meðan hið opinbera heldur áfram að þenja út kerfið án þess að stuðla að verðmætasköpun sitji heimilin og fyrirtækin eftir með reikninginn.

„Auknar álögur auka skaðann. Fyrir þau eru þetta ekki skýrslur eða glærukynningar. Þetta eru hærri afborganir, minni ráðstöfunartekjur og aukið álag á venjulegt fólk. Þetta eru minni lífsgæði og skert framtíð barna okkar. Það er þess vegna sem ábyrg hagstjórn skiptir máli. Þegar stjórnvöld missa taktinn borga heimilin verðið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi
Fréttir
Í gær

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta
Fréttir
Í gær

Segir stöðu Rússlands aldrei hafa verið veikari síðan innrásin hófst

Segir stöðu Rússlands aldrei hafa verið veikari síðan innrásin hófst
Fréttir
Í gær

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára
Fréttir
Í gær

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“