

Margus Tsahkna utanríkisráðherra Eistlands fullyrðir að staða Rússlands hafi aldrei verið eins veik síðan að her landsins réðst inn í Úkraínu í febrúar 2022. Það sé þess vegna óráðlegt að hefja samningaviðræður við rússnesk stjórnvöld á þessu stigi.
Ráðherrann lýsti þessu yfir í samtali við sænska ríkissjónvarpið, SVT.
Tsahkna segir nauðsynlegt að halda áfram að styðja við bakið á Úkraínu og þrýsta á Rússa um að snúa frá því markmiði sínu að hertaka Úkraínu.

Hann telur að í raun séu Rússar fastir í Úkraínu og komist ekki lengra áfram í hernaði sínum þar og séu þar af leiðandi ekki í aðstöðu til að ógna öðrum nágrannaríkjum sínum sem mörg hver eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO.
Tsahkna segir til að mynda lítið um að vera á landamærum Rússlands og Eistlands. Það sé þó ekki loku fyrir það skotið að Rússlandi muni takast að byggja upp hernaðarlega getu sína á nýjan leik og þá ekki síst þegar stríðinu í Úkraínu ljúki. Það muni þó taka að minnsta kosti þrjú til fjögur ár en vestræn ríki geti tafið það með efnahagsþvíngunum og áframhaldandi þrýstingi.
Ráðherrann gagnrýnir þá tilhneigingu Donald Trump Bandaríkjaforseta að gera lítið úr NATO og ýja í sífellu að því að hann muni draga Bandaríkin út úr bandalaginu. Tsahkna segir þetta ekki vera hjálplegt við að viðhalda fælingarmættinum gagnvart Rússum. Samband Bandaríkjanna og Evrópu verði án efa helsta umfjöllunarefnið á leiðtogafundi NATO sem fram fer í Tyrklandi í júlí næstkomandi.
Ráðherrann tekur undir með mörgum evrópskum kollegum sínum um að Evrópuríkin þurfi að styrkja hernaðarlega getu sína og axla aukna ábyrgð á eigin vörnum en ekki láta þær nánast alfarið í hendur Bandaríkjanna. Tsahkna telur það hins vegar ekki gott mál að verið sé að ræða hvort Bandaríkin ætli sér yfirhöfuð að taka einhvern þátt í NATO hvað þá að vera lengur í bandalaginu.