fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fréttir

Rúmlega helmingur Reykvíkinga hefur kosið – Bendir kjörsókn í Grafarvogi og Vesturbæ til þess að eitthvað sé í aðsigi?

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. maí 2026 20:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg heldur úti mælaborði sem sýnir kjörsókn á ólíkum kjörstöðum borgarinnar en miðað við stöðuna klukkan 20:00 í kvöld höfðu 51,31% Reykvíkinga kosið. Þetta er betri kjörsókn en á sama tíma í kosningunum árið 2022 þegar kjörsókn var 48,99% klukkan 20:00.

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, telur að kjörsókn annars vegar í Rimaskóla og hins vegar í Hagaskóla bendi til þess að eitthvað sé í aðsigi, en næstum helmingur Grafarvogsbúa sagðist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í nýjustu könnun Gallup og tæp 18 prósent sögðust ætla að kjósa Miðflokkinn.

Klukkan 20:00 var kjörsókn í Rimaskóla 58,88% en á sama tíma aðeins 47,21% í Hagaskóla. Til samanburðar má nefna að heildarkjörsókn í Rimaskóla var 54,67% árið 2022 og 53,3% í Hagaskóla.

Fyrir áhugasama er hægt að rýna í kjörsóknina hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt