

Fyrstu tölur eru komnar frá Reykjanesbæ og þar er meirihlutinn fallinn en talin hafa verið 5.213 atkvæði. Samfylkingin tapar fylgi og einum bæjarfulltrúa en Sjálfstæðisflokkurinn er á miklu flugi og bætir við sig tveimur bæjarfulltrúum. Miðflokkurinn nær inn manni og Framsókn heldur sínum þremur bæjarfulltrúum.
Núverandi meirihluti samanstendur af Samfylkingu, Framsóknarflokknum og Beinni leið en Bein leið bauð ekki fram í kosningunum. Miðað við fyrstu tölur er því meirihlutinn fallinn.