fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
Fréttir

Fyrstu tölur úr Kópavogi: Stórtíðindi fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. maí 2026 22:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spurningin sem brennur á Kópavogsbúum í dag er hvort núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hljóti traust til að leiða næststærsta sveitarfélag landsins áfram næstu fjögur árin. Skoðanakannanir hafa sýnt að litlu geti munað, en Samfylkingunni er spáð mun betra gengi en í kosningunum 2022 þegar flokkurinn hlaut aðeins einn bæjarfulltrúa og eins virðist Miðflokkurinn ætla að koma sterkur inn.

Fyrstu tölur upp úr kjörkassanum gefa oft góða vísbendingu um hug Kópavogsbúa og nú eru þær komnar, en talin hafa verið 10.087 atkvæði:

  • Sjálfstæðisflokkur: 4552 atkvæði, eða 45,8 prósent og 6 bæjarfulltrúa
  • Samfylking: 1914 atkvæði, eða 19,3 prósent og 2 bæjarfulltrúa
  • Framsókn: 1075 atkvæði, eða 10,8 prósent og 1 bæjarfulltrúa
  • Viðreisn: 957 atkvæði, eða 9,4 prósent og 1 bæjarfulltrúa
  • Miðflokkur: 980 atkvæði, eða 9,9 prósent og 1 bæjarfulltrúa
  • Vinstri græn: 285 atkvæði, eða 2,9 prósent
  • Sósíalistaflokkurinn: 168 atkvæði, eða 1,7 prósent
  • Auðir seðlar voru 156 en enginn seðill var ógildur.

Miðað við þessar fyrstu tölur er Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta og bætir töluvert við sig frá síðustu kosningum. Samfylkingin bætir líka hressilega við sig en bætir þó bara við sig einum fulltrúa.

Verði þetta niðurstaða kosninganna þá er um sögulega stund fyrir Sjálfstæðismenn að ræða en þeirra besta gengi hingað til var árið 2006 þegar flokkurinn hlaut 44,27 prósent atkvæða sem þó dugaði ekki fyrir hreinum meirihluta.

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna árið 2022 voru eftirfarandi:

  • Sjálfstæðisflokkur: 33,32% og fjórir bæjarfulltrúar
  • Framsókn: 15,16% og tveir bæjarfulltrúar
  • Vinir Kópavogs: 15,28% og tveir bæjarfulltrúar (buðu ekki fram í ár)
  • Viðreisn: 10,67% og einn bæjarfulltrúi
  • Píratar : 9,51% og einn bæjarfulltrúi (buðu ekki fram í ár)
  • Samfylkingin: 8,18% og einn bæjarfulltrúi
  • Vinstri grænir: 5,27% og enginn bæjarfulltrúi
  • Miðflokkur og óháðir: 2,62% og enginn bæjarfulltrúi

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forstöðukona Konukots segist skilja vel áhyggjur nágranna: „Maður hræðist það sem maður þekkir ekki“

Forstöðukona Konukots segist skilja vel áhyggjur nágranna: „Maður hræðist það sem maður þekkir ekki“
Fréttir
Í gær

Viðar segir ekki standast að launahækkanir leiði til verðbólgu – Verð úti í búð lækkar ekki heldur bara hækkar

Viðar segir ekki standast að launahækkanir leiði til verðbólgu – Verð úti í búð lækkar ekki heldur bara hækkar
Fréttir
Í gær

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð

Leita að fjársjóðsskipi við strendur Íslands: Talið að gríðarleg verðmæti hafi verið um borð
Fréttir
Í gær

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“

Andrea vill að María Rut og stjórnarliðar líti sér nær – „Fullkomlega ömurlegt og óásættanlegt“
Fréttir
Í gær

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“

Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“
Fréttir
Í gær

Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“

Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“

Adam í baráttu við banvænan sjúkdóm – „Erfitt að horfa upp á þau ganga í gegnum þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík – Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB – „Lífið líka fullt af áskorunum“

20 ára kynni: Andstæðingar í pólitík – Samstíga í borgarstjórn, krabbameinsmeðferð og andstöðu við ESB – „Lífið líka fullt af áskorunum“