fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 18:30

Er betra að geyma matinn í glerílátum? Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er betra að geyma mat í plastíláti en í gleríláti? Skiptir máli hvort matur, sem á að hita upp, er í plastíláti eða gleríláti?

Í umfjöllun Receitas um málið kemur fram að þegar matur er hitaður upp, þá verði að hafa í huga að plast og gler hitni ekki eins.

Gler deilir hitanum jafnt og maturinn verður því allur jafn heitur. Plast getur hins vegar deilt hitanum ójafnt, allt eftir hvernig plast er um að ræða og gæðum þess. Þetta þýðir að hlutar matarins geta orðið mjög heitir en aðrir haldast kaldir. Þetta getur haft áhrif á bæði bragð og öryggi.

Ílátin sjálf breyta ekki næringarefnunum í matnum beint en ef upphitunin er ójöfn, þá geta sum vítamín tapast úr matnum.

Receitas bendir einnig á að plast getur haft áhrif á gæði matarins ef efni úr ílátinu berast í matinn. Örplast getur einnig borist í matinn.

Sumar tegundir plasts innihalda efnið Bisfenol A sem getur borist í mat við upphitun. Rannsóknir hafa tengt þetta efni við margvísleg heilsufarsvandamál, þar á meðal annars truflanir á hormónastarfsemi.

Glerílát eru yfirleitt talin öruggari kostur því engin efni berast úr þeim í matinn og maturinn hitnar jafnt í þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fékk aðgang að alræmdasta fangelsi heims: „Ekkert gat búið mig undir það sem ég sá“

Fékk aðgang að alræmdasta fangelsi heims: „Ekkert gat búið mig undir það sem ég sá“
Pressan
Í gær

Lýsir enn yfir sakleysi eftir að hún banaði kærasta sínum og vini hans – Heimildarmynd vekur hörð viðbrögð

Lýsir enn yfir sakleysi eftir að hún banaði kærasta sínum og vini hans – Heimildarmynd vekur hörð viðbrögð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sérfræðingar vara við geitungasumri: Bú finnast á ótrúlegustu stöðum

Sérfræðingar vara við geitungasumri: Bú finnast á ótrúlegustu stöðum