fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
EyjanFastir pennar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Val Viðreisnar

Eyjan
Sunnudaginn 10. maí 2026 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú sem þetta skrifar hefur afskaplega gaman af kosningum og kemst í góðan gír þegar þær skella á. Ef hún á erindi þessa dagana í Kringluna eða Smáralind eða jafnvel bara í Austurstrætið skimar hún í kringum sig í leit að fjörugu og upplitsdjörfu fólki sem veifar kosningabæklingum og vill kynna málefni síns flokks. Hún sér þetta fólk hvergi.

En hvað myndi maður svo sem segja við frambjóðendur Miðflokksins mætti maður þeim? Eitt nýjasta útspil oddvitans, Ara Edwald, er að vara við innflytjendum í myndbandi sem hann birti á samfélagsmiðlum. Hann telur þá hafa gert Reykjavík að óöruggri borg og rænt borgarbúa öryggistilfinningu. Í myndbandinu talar hann eins og ekki sé lengur öruggt að fara upp í strætisvagn því þar sé viðbúið að maður myndi mæta innflytjanda sem sýndi yfirgang og ósvífni. Hann segir Miðflokkinn horfast í augu við óþægilegar staðreyndir um leið og hann hvetur fólk til að kjósa flokkinn. Málflutningur Ara hljómar eins og Miðflokkurinn sé eini stjórnmálaflokkur landsins sem hafi raunverulega jarðtengingu og þori að horfast í augu við óþægilegar staðreyndir.

Á lokaspretti kosningabaráttunnar er ótti og tortryggni í garð útlendinga það mikilvægasta sem oddviti Miðflokksins í borginni hefur fram að færa. Það er ekki eins og orð hans í myndbandinu megi flokka sem „óhapp“, Miðflokkurinn hefur meðvitað alið á andúð á útlendingum, einkum þeim sem fylgja öðrum siðum og iðka aðra trú en meginþorri landsmanna. Hluti landsmanna kinkar samþykkjandi kolli við þessum málflutningi.

Þarna er um að ræða oddvita Miðflokksins sem skömmu fyrir kosningar birtir ógeðfelldan boðskap sinn eins og hann sé algjörlega sjálfsagður og réttmætt innlegg í meirihlutasamstarf. Miðflokkurinn gæti komist í meirihluta í borginni með Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn. Hafa þeir flokkar virkilega lyst á því samstarfi?

Miðflokkurinn, sem segist þora að tala um það sem aðrir þegja um, hefur margoft farið offari. Eins og kunnugt er hefur flokkurinn með málflutningi sínum fengið stóran hluta hinsegin samfélagsins upp á móti sér. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra fór nýlega í færslu á Facebook hörðum orðum um Miðflokkinn og sagði hann vilja halda hinsegin fólki í skugganum. Og nú kemur þetta innlegg oddvita Miðflokksins um innflytjendur inn í kosningabaráttuna í borginni.

Það verður ekki haft af oddvita Miðflokksins í borginni að hann kemur fram í eftirminnilegum myndböndum, eins og þegar hann rúntaði um göngugötur miðbæjarins í leit að bílastæðum.

Í kosningabaráttunni höfðar flokkurinn mjög til pirraðra bíleigenda sem kvarta undan því að þurfa að sitja of lengi í bílum sínum. Pistlahöfundur fer allra sinna ferða gangandi eða í strætó. Hún hefur fyrir löngu uppgötvað að það tekur þó nokkurn tíma að komast á milli staða. Hún kvartar ekki og skilur ekki alveg í bölvi bíleigenda sem eru svo miklu fljótari en hún að komast á áfangastað.

Í strætóferðum sínum, sem oft eru fleiri en ein á dag, hefur hún aldrei séð innflytjanda sýna þann yfirgang sem oddviti Miðflokksins vísar til í myndbandinu áðurnefnda. Hún man hins vegar vel eftir að hafa verið í strætó fyrir einhverjum árum þar sem var íslenskur eldri karlmaður sem hafði orðið fyrir því óláni að hörundsdökkur maður, sennilega innflytjandi, settist við hlið hans. Íslenski karlmaðurinn stóð upp og færði sig í annað sæti um leið og hann sagði: Ég sit ekki við hliðina á þessum svarta!

Það stefnir í æsispennandi kosningar og stór hluti kjósenda á eftir að gera upp hug sinn. Tvennt virðist afar líklegt í stöðunni eftir kosningar. Annars vegar að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Viðreisn leggi saman. Hins vegar að Samfylkingin, Viðreisn og vinstri flokkar vinni saman.

Langlíklegast er talið að Viðreisn verði í lykilstöðu eftir kosningarnar 16. maí. Hinn mjög svo líflegi oddviti þeirra, Björg Magnúsdóttir, sagði nýlega í viðtali: „Það væri mjög erfitt fyrir Viðreisn að semja við flokk sem styður ekki hinsegin samfélagið í Reykjavík og fjölbreytileikann og mannréttindi fólks.“

Það væri líklega ekki bara mjög erfitt, eins og Björg segir, heldur eiginlega ómögulegt. Eða hvað segir Hanna Katrín?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka

Óttar Guðmundsson skrifar: Salka Valka
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Bægifótur gengur aftur

Óttar Guðmundsson skrifar: Bægifótur gengur aftur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Eru hljóðbækur fyrir ólæsa sauði?

Nína Richter skrifar: Eru hljóðbækur fyrir ólæsa sauði?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl