fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Eyjan

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Eyjan
Laugardaginn 9. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við getum ekki gert Reykjavík bara að einhverri bandarískri bílaborg. Það tók mörg ár að gera Samgöngusáttmálann að veruleika, fá alla bæjarstjóra höfuðborgarsvæðisins, auk þriggja ráðherra til að ná þessu samkomulagi. Samgöngusáttmálinn er ekkert fullkominn en hann er til staðar og hann er fjármagnaður. Að hverfa frá honum myndi þýða margra ára töf frá bráðnauðsynlegum samgöngubótum á höfuðborgarsvæðinu. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 3
play-sharp-fill

Eyjan Björg Magnúsdóttir - 3

En það eru fleiri mál, mjög stórt mál í Reykjavík er Borgarlínan og Samgöngusáttmálinn. Þar virðast vera að myndast svona fylkingar. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur virðast vera andsnúnir þessu, vilja bara taka þetta allt upp og vinda ofan af öllu og skoða þetta upp á nýtt. Það myndi væntanlega þýða tuttugu ára töf á öllu. Hvernig horfir þetta við þér, hvernig horfa þessi mál við þér? Verða þessi mál þýðingarmikil þegar kemur til dæmis að myndun meirihluta?

„Ef við förum aðeins í samgöngusáttmálann þá verður alltaf að hafa dálítinn formála í huga vegna þess að þetta er bara samningur sem var undirritaður, fjármagnaður samningur sem var undirritaður 2019 af ráðherrum, bæjarstjórum og borgarstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Það er mjög sjaldgæft að við Íslendingar náum saman um slíkt plagg til langs tíma og ég verð bara að fá að hrósa þessu fólki sem kom að þessari vinnu. Það var skrifað undir þetta fyrir sjö árum í fyrsta skipti en þú getur ímyndað þér vinnuna sem fór í að koma þeim samningi saman og raða í tímaröð, hvaða framkvæmdir á að fara í fyrst og svo framvegis.

Þetta er mjög mikilvægur samningur fyrir borgina vegna þess að Reykvíkingar hafa ekki verið fremstir í röðinni þegar kemur að samgönguúrbótum frá ríkisins hendi mjög lengi. Og við finnum það og við erum að tala við kjósendur og Reykvíkinga út um alla borg. Fólk er bara endalaust fast í umferðinni og þetta er glatað. Það eru bara raðir út um allt og við þekkjum þetta auðvitað sjálf. Þannig að inni í samgöngusáttmálanum eru mjög mikilvægar framkvæmdir fyrir einkabílinn og það er til dæmis hægt að nefna Miklubrautargöng, það er til dæmis hægt að nefna gatnamótin, Bústaðaveg Sæbraut, sem er nú ein leiðinlegasta beygja seinni tíma. Margir hérna kannast við hana í síðdegistraffíkinni og á morgnana og svo er sem sagt Sæbrautin í stokk og ásamt ýmsu öðru. Það er verið að tengja hérna saman Arnarnesvegurinn að tengja saman Kópavoginn, sem sagt annars staðar við höfuðborgarsvæðið og svo með Öldu brúna yfir Fossvoginn sem er núna í fullum gangi. Þannig að það verður að halda þessu aðeins til haga að þetta er risastórt verkefni og Borgarlínan er hluti af þessu.

Borgarlínan er er þessi almenningssamgöngupartur inni í samgöngusáttmálanum af því það er verið að fjárfesta til jafns fyrir einkabílinn og almenningssamgöngur. Mér finnst dálítið magnað að hvert sem ég fer þá er talað um umferð og sannarlega en við erum öll sammála, og ég hef verið að tala við mjög harða hægrimenn, mjög harða vinstrimenn og allt þar á milli. Við erum öll sammála um að það þurfi að gera hér betur í almenningssamgöngum og það finnst mér dálítið ánægjulegt af því að þá vitum við, ókei, við verðum að halda áfram. Við verðum að gera betur, við getum ekki orðið bandarísk bílaborg. En veistu að við erum það dálítið. Stjúpdóttir mín, hvað gerir hún þegar hún fær bílpróf? Kaupir sér bíl. Þetta er dálítið menningin núna því það auðvitað sýnir sig að Strætó er ekki á réttri tíðni og það er ekki þægilegt að ferðast með honum og fólk gerir þá bara eitthvað annað. Þannig að við verðum dálítið að losa okkur upp úr þessum hugsunarhætti að allir þurfi að eiga bíl.

Þetta er orðið auðvitað bara fjárhagslegt mál fyrir fjölskyldur þessir bílaflotar, maður sér það bara sjálfur. Björn Berg var með greiningu á þessu um daginn, það kostar eina og hálfa milljón á ári að reka bíl og svo auðvitað kílómetragjaldið og svo mögulega olíukreppa og annað. Þetta er bara ofboðslega mikilvægt ef Reykjavík ætlar að svona tosa sig upp og verða meðal borga og fara aðeins inn í framtíðina. Mér finnst líka unga fólkið tala mjög mikið um þetta, að það verði hér að gefa í í almenningssamgöngum. Og bara ef fólk ætlar að búa hér til framtíðar. Við verðum að fá betri umferð inn á höfuðborgarsvæðið. Þannig að við í Viðreisn segjum, við verðum að halda áfram með samgöngusáttmálann. Augljóslega þarf að finna út úr Suðurlandsbrautinni og ég bara gef mér það, ef ég verð í borgarstjórn á næsta kjörtímabili, að við fáum þetta bara í fangið strax í júní og förum bara að finna út úr þessu með hagaðilum og verslunareigendum. Ég ætla ekkert að segja nákvæmlega hvernig þetta verður gert en mér finnst bara augljóst að það þurfi að fara í einhverja sáttameðferð með þessa götu.“

Þetta er skipulagsmál hjá Reykjavík, þetta er ekki Samgöngusáttmálinn, þetta er alfarið á valdi Reykjavíkurborgar.

„Alfarið á valdi Reykjavíkurborgar, það er algjörlega skýrt að samgöngusáttmálinn er bara stóra plaggið og, nota bene, ríkið er að borga 87,5% af því en innan hvers sveitarfélags hefur hvert sveitarfélag skipulagsvald yfir sínum götum þannig að Reykjavíkurborg ræður því hvernig útfærslan er á Suðurlandsbrautinni og það er bara næstu borgarstjórnar að taka á því. Ég heyri hérna af hægri vængnum sagt að það þurfi að rífa þetta allt upp með rótum og endurskoða frá grunni. Endurskoða frá grunni, hvað þýðir það? Það þýðir einfaldlega að þú þarft að ná saman öllum bæjarstjórunum á höfuðborgarsvæðinu, þremur ráðuneytum eða þremur ráðherrum og fara að semja um þetta allt upp á nýtt. Bara miðað við tímann sem það tók okkur að komast hingað þá gef ég mér að þetta séu ekki minna en sjö ár í einhverju karpi fram og til baka hvað á að gera.“

Sjö ár er varlega áætlað, ætla ég bara að fullyrða við þig. Ég segi tuttugu.

„Veistu það, við getum ekki beðið lengur. Mér finnst samgöngusáttmálinn ekki fullkomið plagg. Ég væri til í að sjá úrbætur fyrir Reykvíkinga miklu framar bara með þeim rökum að það hafi verið vanfjárfest í samgöngumannvirkjum í Reykjavík. Þetta er hins vegar samningurinn sem er á borðinu og hann er fjármagnaður. Höldum áfram. Mér finnst það eina ábyrga niðurstaðan varðandi þessi samgöngumál að halda áfram. Ef þú tekur eitthvað svona stórt mál og segir: Heyrðu, ég ætla að byrja hérna frá grunni, þá ertu dálítið að soga súrefnið úr öðrum verkefnum á sama tíma. Þetta er eins og þegar ríkisstjórnin ætlaði að fara að breyta stjórnarskránni. Það er bara meiriháttar mál. Það bara sogar til sín dálítið orkuna og umræðuna og mannskapinn og svona ef þú ætlar að fara að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni, það er meiriháttar vinna. Þá ertu ekki að gera eitthvað annað á meðan. Og ég segi að meðan við horfum á verkefnalistann sem næsta borgarstjórn Reykjavíkur fær í fangið, þú veist að innviðir út um alla borg og í öllum hverfum eru í molum. Það eru bara illa farnar skólabyggingar sem liggja undir skemmdum, brotnar gangstéttir og bara alls konar. Róluvellir, léleg græn svæði, já mér finnst þetta bara ömurlegt. Það er bara hryggðarmynd sem blasir við víða. Þetta myndi ég segja að væri algjört forgangsverkefni. Höldum áfram með samgöngusáttmálann, finnum út úr Suðurlandsbrautinni, en setjum fókus á það að taka til í kerfinu, ná pening út úr ráðhúsinu og setja inn í hverfin. Það er algjört fókusverkefni hjá okkur í Viðreisn.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Tímabundnir leigusamningar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur

Óttar Guðmundsson skrifar: Galdramenn ganga aftur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8
Hide picture