fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
433Sport

Drauma sunnudagur hjá Jökli í Kaleo – Fékk áhugaverða gjöf frá einni af hetjunum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, skellti sér á stórleik Manchester United og Liverpool á Old Trafford um helgina og upplifði eftirminnilega ferð.

Jökull var meðal gesta á leiknum þar sem hann fékk einstakt tækifæri til að hitta knattspyrnustjórann Michael Carrick baksviðs eftir leik. Þá fékk hann einnig áritaða treyju frá Matheus Cunha, sem skoraði eitt marka United í leiknum.

„Til bróðir míns, JJ,“ stóð á treyjunni sem Cunha gaf Jökli.

Með Jökli í för voru meðal annars athafnamaðurinn Róbert Wessman og fleiri góðir gestir sem nutu stemningarinnar á einum stærsta leik ensku úrvalsdeildarinnar.

Ferðin virðist hafa verið sannkölluð draumaferð fyrir Jökul, sem hefur lengi verið mikill áhugamaður um knattspyrnu og naut þess greinilega að fylgjast með stórleiknum úr návígi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Reiði yfir HM boltanum – Þeir sem framleiða boltann geta aldrei keypt sér hann

Reiði yfir HM boltanum – Þeir sem framleiða boltann geta aldrei keypt sér hann
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrrum samherjar takast harkalega á – Rifjar upp atvikið þegar hann hrækti á unga stelpu

Fyrrum samherjar takast harkalega á – Rifjar upp atvikið þegar hann hrækti á unga stelpu