

Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallaði um þetta á vef sínum á dögunum.
Áætlað er að Síle flytji inn um 123.000 tonn af notuðum fötum á ári hverju. Stærstur hluti þeirra fer um fríverslunarsvæðið við Iquique í norðurhluta landsins, þar sem fyrirtæki njóta undanþágu frá tollum og virðisaukaskatti.
Þessi sérstaða hefur gert svæðið að miðpunkti fyrir endursölu notaðs fatnaðar í Suður-Ameríku. Föt berast í stórum gámum frá Bandaríkjunum, Kanada, Evrópu og Asíu og eru annaðhvort seld á staðnum eða flutt áfram til annarra landa eða svæða.
Í frétt BBC kemur fram að margir íbúar á svæðinu hafi atvinnu af þessu. Um 50 fyrirtæki starfa við fatainnflutning og veita mörgum störf, sérstaklega konum sem vinna við að flokka fatnað eftir gæðum. Um er að ræða tiltölulega einföld störf sem krefjast ekki mikillar sérhæfingar og eru því aðgengileg breiðum hópi fólks. En starfsemin á sér einnig skuggahlið sem er alvarlegt umhverfisvandamál.

Föt af lakari gæðum enda oft á útimörkuðum, svo sem í La Quebradilla nálægt bænum Alto Hospicio, þar sem þau eru seld ódýrt. Það sem ekki selst skapar hins vegar vanda. Samkvæmt gildandi reglum má slíkur úrgangur ekki fara á urðunarstaði sveitarfélaga, þar sem þeir eru eingöngu ætlaðir heimilissorpi.
Formlega eiga innflytjendur að flytja óseldan fatnað úr landi, greiða skatta til að selja hann utan fríverslunarsvæðisins eða afhenda hann viðurkenndum úrgangsfyrirtækjum. Í reynd velja margir að fara ódýrari leið sem er um leið ólögleg.
Áætlað er að um 39.000 tonn af fötum séu árlega annaðhvort brennd eða skilin eftir í eyðimörkinni í kringum Alto Hospicio þar sem heilu fatafjöllin eiga það til að myndast.
Í frétt BBC kemur fram að sveitarfélög á svæðinu séu ráðþrota gagnvart vandanum. Aðstæður gera eftirlit erfitt, þar sem svæðið er umlukið víðáttumikilli eyðimörk sem auðvelt er að nálgast með vörubílum. Þrátt fyrir eftirlit og sektir viðurkenna yfirvöld að skortur á fjármagni og mannafla geri það nánast ómögulegt að halda í við umfangið.
Nú eru þó teikn á lofti um breytingar. Í Iquique hefur verið unnið að lausnum sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins. Hluti af þeirri viðleitni er ný verksmiðja sem á að umbreyta ónýtum fatnaði í ný efni.
Verksmiðjan, sem er í byggingu skammt frá Alto Hospicio, mun nota sérstakar vélar til að breyta fötum í trefjar og síðan í svokallað filt – þétt efni sem getur til dæmis nýst sem einangrunarefni. Afurðirnar eiga að nýtast meðal annars í dýnur, húsgögn og bílaiðnað. Áætlað er að vinnslugeta verksmiðjunnar verði allt að 20 tonn á dag.
Verkefnið er því ekki aðeins ætlað að draga úr umhverfisvanda heldur einnig skapa ný viðskiptatækifæri, á sama tíma og lagabreytingar í Síle kveða á um aukna ábyrgð framleiðenda á förgun fatnaðar.
Tekið er fram í umfjöllun BBC að óljóst sé hvort þessar aðgerðir duga til að stöðva þann mikla straum textílúrgangs sem endar í eyðimörkinni, en tíminn muni leiða það í ljós á næstu misserum.