fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Pressan
Föstudaginn 17. apríl 2026 13:56

Íranir hafa ákveðið að opna siglingaleiðina um Hormússund fyrir allri skipaumferð. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írönsk stjórnvöld tilkynntu fyrir stundu að búið væri að opna fyrir alla skipaumferð um Hormússund. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar vopnahlés á milli Ísraels og Líbanon.

Í færslu á samfélagsmiðlinum X segir Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, að siglingar fari fram eftir fyrir fram skilgreindri leið sem yfirvöld í Íran hafa þegar kynnt.

Hormússund er ein mikilvægasta flutningaleið olíu í heiminum og hefur verið lokað að verulegu leyti undanfarnar vikur. Hafa margir viðrað áhyggjur sínar af yfirvofandi eldsneytisskorti og að flugsamgöngur gætu lamast á næstu vikum.

„TAKK FYRIR,“ skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðilinn Truth Social eftir að ákvörðunin lá fyrir.

Verð á hráolíu hefur lækkað verulega eftir tilkynningu Araghchi. Í frétt BBC er bent á að í kjölfar tilkynningarinnar hafi verð á Brent-hráolíu farið niður fyrir 90 dali á tunnu, eftir að hafa verið yfir 98 dalir í morgun.

Verð á svokallaðri NYMEX light sweet hráolíu, sem er viðmið í Bandaríkjunum, lækkaði einnig töluvert.

Fyrir átökin var Brent-hráolía seld á tæplega 70 dali á tunnu. Verðið fór yfir 100 dali í byrjun mars og náði hámarki í 119 dollurum.

Hlutabréfamarkaðir í Evrópu og Bandaríkjunum hafa einnig tekið við sér eftir tilkynninguna. CAC-vísitalan í París og DAX-vísitalan í Frankfurt hækkuðu báðar um rúmlega 2%. Í London var hækkun FTSE-vísitölunnar hóflegri, eða um 0,5%. Í Bandaríkjunum, á fyrstu mínútum viðskipta, hækkaði Dow Jones-vísitalan um 1,3% og S&P 500 um 0,7%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO