
Parrish, fyrrverandi liðsmaður í breska hernum, lagði upp í tilraun til að verða sá hraðasti til að ljúka 376 kílómetra leiðinni frá Fort William að Cape Wrath í norðvesturhluta Bretlands.
Hann fannst látinn á afskekktu fjallasvæði í Kintail í skosku hálöndunum á ellefta tímanum á laugardagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá skosku lögreglunni var brugðist við þegar staðsetningarbúnaður sem hann bar sýndi að hann hefði hætt að hreyfast.
Mettilraunin var ekki aðeins persónuleg áskorun heldur einnig fjáröflun fyrir Scottish Mountain Rescue til minningar um náinn vin hans, Luke Ireland, sem lést úr ofkælingu árið 2014 eftir að veður versnaði skyndilega í fjallahlaupi við Glen Clova.
Þrátt fyrir að hafa aðeins keppt í ofurhlaupum í nokkur ár hafði Parrish þegar náð eftirtektarverðum árangri.
Árið 2023 sigraði hann Cape Wrath Ultra, sitt fyrsta ofurhlaup, á tímanum 45 klukkustundir, 28 mínútur og 48 sekúndur – næsthraðasta tíma sem náðst hefur í sögu keppninnar.
Í september í fyrra varð hann einnig fyrstur karla í Dragon’s Back, sex daga 380 kílómetra ofurhlaupi yfir fjalllendi Wales.
Cape Wrath-leiðin er þekkt fyrir afar erfiðar aðstæður, fáa stíga, votlendi og langa kafla þar sem engin mannabyggð er í nágrenninu.