
Donielle Showay kynntist Chad Schipper í biblíuhóp skömmu fyrir aldamótin. Hún taldi sig hafa fundið góðan kristinn draumaprins og óraði hana ekki fyrir þeim hryllingi sem beið hennar. Hún stígur nú fram í heimildarþáttunum Betrayal: Secrets & Lies og deilir sögu sinni.
Taldi Donielle öruggt að hún hefði fundið sinn eina rétta. Hún samþykkti því að giftast honum, sem var stór ákvörðun fyrir hana þar sem í hennar augum er hjónaband skuldbinding út lífið, í samræmi við trú hennar.
Þegar Chad viðurkenndi fljótlega eftir brúðkaupið, og það með karlmanni, hugsaði Donielle að þetta væri bara hjallur sem þau þyrftu að komast yfir saman. Hjónabandsráðgjafi þeirra var á öðru máli. Hann sagði Donielle að þetta hjónaband væri dauðadæmt, en hún lét sér ekki segjast.
Ekki leið á löngu áður en fyrsta barn þeirra kom í heiminn en í heildina urðu börnin sex. Donielle þótti miður hvað Chad vann mikið en hún skildi það þó. Hann vildi tryggja fjölskyldu sinni gott líf. Hann starfaði við fjármálaráðgjöf og vissi Donielle ekki betur en að það gengi vonum framar.
Hann tók að sér að fjárfesta fyrir skjólstæðinga sína og kippti Donielle sér því ekki upp við það þegar hann fór að ganga hart á eftir eldri hjónum sem sóttu sömu kirkju og þau. Þetta voru hjónin Larry og Connie Van Oosten og það var illa geymt leyndarmál að þau hefðu nýlega orðið töluvert efnuð. Oosten-hjónin vildu þá hafa fjármál sín í höndum reyndari fjárfesta og afþökkuðu ágeng tilboðin frá Chad.
Það átti eftir að koma á daginn að Chad gat engan veginn sætt sig við þessa höfnun.
Kvöld eitt árið 2017 vöknuðu Donielle og börn hennar við vondan draum þegar sérsveitin braut sér leið inn á heimili þeirra. Connie Van Oosten hafði komið í bankann sinn fyrr um daginn í töluverðu uppnámi. Hún bað bankastarfsmann um að skrifa fyrir sig ávísun upp á 350 þúsund bandaríkjadali, sem eru tæpar 44 milljónir íslenskra króna á núvirði, og laumaði svo miða að starfsmanninum þar sem hún gaf til kynna að hún væri fórnarlamb fjárkúgunar:
„Eiginmaður minn og ég erum gíslar vopnaðs manns. Ekki bregðast við. Ekki fylgja okkur eftir.“
Ávísunin var gefin út til fyrirtækis í eigu Chad. Eftir að lögreglan handtók hann viðurkenndi hann fljótlega að hafa rænt Von Oosten-hjónunum. Chad var nefnilega stórskuldugur. Hann hafði dregið að sér fé frá skjólstæðingum sínum, stolið peningum af vinum og vandamönnum og steypt sér í miklar skuldir. Peningar öldruðu hjónanna áttu að bjarga honum fyrir horn.
Hann hafði brotist inn til hjónanna, bundið fyrir augu þeirra og notað raddbreyti svo þau gætu ekki borið kennsl á hann. Spurði hann hjónin meðal annars: Hvar er guð ykkar núna?
Síðan þvingaði hann Connie til að fara í bankann til að fá ávísun fyrir hann, því annars myndi fara illa fyrir manni hennar, börnum og jafnvel barnabörnum líka. Eftir að Connie sneri til baka með ávísunina fór hann með hjónin á fasteign sem hann hafði keypt. Hann hafði sagt Donielle að hann ætlaði að gera eignina upp og leigja hana út til að fá aukatekjur. Þess í stað hafði hann fengið verktaka til að undirbúa hljóðeinangraðan kjallara með leynihurð sem var falin inni í fataskáp.
Þar inni fann lögreglan hjónin tjóðruð og enn var bundið fyrir augu þeirra. Þeim hafði verið haldið þar í tvo sólarhringa. Chad hafði notað rafbyssu til að yfirbuga þau og notaði hann vopnið óspart.
Chad var árið 2018 ákærður fyrir mannrán, vopnað ofbeldi, líkamsárás, húsbrot og frelsissviptingu. Hann játaði sök og árið 2019 var hann dæmdur í 60 ára fangelsi og að þessu sinni gat Donielle ekki ímyndað sér að vera áfram gift honum, sama hvað trú hennar hefði um slíkt að segja.
Hann brenndi fleiri brýr að baki sér en bara hjónabandið en áður en hann greip til þess örþrifaráðs að ræna Van Oosten-hjónunum hafði hann fengið 300 þúsund bandaríkjadali að láni frá ömmu sinni og var frændi hans farinn að þjarma að honum um endurgreiðslu. Eins hafði hann tekið lán með veði í húsi foreldra sinna og auk þess dregið að sér fé sem hann átti að fjárfesta fyrir skjólstæðinga sína.
Foreldrar Chads enduðu með að stefna honum í einkamáli þar sem þau sökuðu hann um að hafa stolið rúmlega 444 þúsund bandaríkjadölum frá þeim á fjögurra ára tímabili. Þau hafi látið hann hafa peningana í góðri trú um að hann ætlaði að fjárfesta þá fyrir þau, en þess í stað stakk hann peningunum í vasann og notaði meðal annars í fasteignabraskið, þar með talið í fasteignina þar sem hann lét útbúa mannránskjallarann.
Eftir að Chad hóf afplánun hefur hann gert ítrekaðar tilraunir til að ná í Donielle en hún hefur ekki yrt á hann síðan hann var handtekinn. Hann brá því á það ráð að skrá sig á vefsíðu þar sem fangar leita að pennavinum. Þar vonaðist Chad til að eignast vini og skrifaði um sjálfan sig:
„Ég er laus við alla fordóma, einlægur og einstaklega trygglyndur. Ég er ævintýragjarn, kannski smá hrekkjóttur, en hjartahlýr.“