fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni

Pressan
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Kepner, 18 ára, fannst látin á skemmtiferðaskipi í nóvember, en hún hafði verið í ferðalagi með fjölskyldu sinni. Fljótlega eftir að fréttir bárust af andláti hennar var greint frá því að 16 ára stjúpbróðir Önnu væri sakborningur í málinu. Drengurinn hefur nú verið ákærður fyrir bæði kynferðisbrot og morð.

Ákæruvaldið heldur því fram að stjúpbróðirinn hafi nauðgað Önnu og svo banað henni með því að þrengja að öndunarvegi hennar. Upphaflega var drengurinn ákærður sem barnungur brotamaður en í slíkum tilfellum eru refsingar töluvert vægari. Nú hefur hann verið ákærður sem fullorðinn einstaklingur.

Faðir Önnu, Chris Kepner, er giftur móður drengsins, Shauntel Kepner. Þau sögðu í yfirlýsingu í gær að fjölskyldan væri í sárum vegna málsins: „Við erum miður okkar yfir andláti Önnu og erum enn að syrgja vegna þessa ólýsanlega harmleiks,“ sagði í yfirlýsingunni en þar kom jafnframt fram að drengurinn væri ekki í varðhaldi. „Við trúum að það sé nauðsynlegt að taka ábyrgð og við treystum því að dómskerfið muni leiða sannleikann í ljós af heilindum. Þessar aðstæður eru fjölskyldu okkar bæði sárar og flóknar. Anna var heitt elskuð og við munum halda lífi hennar og minningu á lofti.“

Fram hefur komið í fjölmiðlum að stjúpbróðirinn hafi verið með Önnu á heilanum. Hafði hún meðal annars rætt við foreldra fyrrverandi kærasta síns um áreitni stjúpbróðursins, en faðir fyrrverandi kærastans, Steven Westin, sagði við fjölmiðla skömmu eftir að málið kom upp:

„Hún óttaðist hann því hann gekk alltaf um með stóran hníf.“

Fyrrverandi tengdafaðirinn sagði eins að sonur hans hefði eitt sinn verið með myndsímtal í gangi og þá séð stjúpbróðurinn koma óboðinn inn í herbergi Önnu og reyna að leggjast ofan á hana.

„Hann var með hana á heilanum, hann laðaðist að henni eins og vitstola maður. Hann vildi byrja með henni.“

Westin segist hafa reynt að ræða þetta við foreldra Önnu en þau hafi ekki viljað heyra það.

Sjá einnig: Spjótin beinast að 16 ára stjúpbróður eftir að táningsstúlka fannst látin á skemmtiferðaskipi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans