fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 12:00

Margir þingmenn Repúblikana flýja nú sökkvandi skútu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingmenn Repúblikana streyma nú að útganginum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og þegar sú staða er uppi, er það yfirleitt ávísun á vond tíðindi fyrir sitjandi forseta.

Slæmt gegni í skoðanakönnunum, hver ósigurinn á fætur öðrum í staðarkosningum, himinhátt bensínverð. Öll aðvörunarljós blikka hvað varðar gengi Repúblikana í þingkosningunum í nóvember næstkomandi.

Nú getur Donald Trump bætt flótta sitjandi þingmanna við listann yfir áhyggjuefnin. Sögulegur fjöldi þingmanna Repúblikana sækist ekki eftir endurkjöri í nóvember. Þetta kemur fram í umfjöllun CNN og New York Times.

Að minnsta kosti 36 Repúblikanar hafa tilkynnt að þeir sækist ekki eftir endurkjöri í nóvember en þá verður kosið um öll sætin í fulltrúadeildinni.

„Repúblikanarnir í fulltrúadeildinni hlaupa hraðar að útganginum en börn á síðasta skóladegi,“ sagði Harry Enten, blaðamaður og greinandi hjá CNN, þegar hann fjallaði um tölurnar nýlega.

Úttekt CNN sýnir að sá flokkur, sem hefur flesta þingmenn sem sækjast eftir endurkjöri, hefur fengið meirihluta í fulltrúadeildinni í fjórum af hverjum fimm kosningum síðustu 40 árin.

Sú þróun sem á sér nú stað í þingliði Repúblikana bendir til að þingmennirnir hyggist finna sér aðra vinnu frekar en að þurfa að sitja í minnihluta í heilt kjörtímabil segir í umfjöllun New York Times.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta konan á leið í gálgann

Fyrsta konan á leið í gálgann