fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Þetta eru kostirnir við að fara í bað á kvöldin

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 18:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumir kjósa að byrja daginn með að fara í bað eða sturtu enda ótrúlega frískandi að byrja daginn á því. Sumir velja hins vegar að enda daginn með því að fara í bað eða sturtu á kvöldin og það er nú heldur ekki svo galin hugmynd.

Hér fyrir neðan segjum við frá nokkrum kostum þess að fara í bað á kvöldin.

Húðin hefur gott af því – Húðin okkar endurnýjar sig á meðan við sofum. Það þýðir í stuttu máli sagt að líkaminn losar sig við dauðar húðfrumur og býr til nýjar. Það er auðveldara fyrir líkamann að endurnýja húðina ef hún er hrein. Þú auðveldar líkamanum því þessa endurnýjun ef þú ferð í bað áður en þú ferð að sofa.

Minni feit húð – Ef þú ert ein af þeim sem hefur tilhneigingu til að fá feita húð, þá getur kvöldbað hjálpað þér við að leysa það vandamál. Kvöldbað dregur úr líkunum á að þú fáir bólur því þú liggur ekki í fitu og drullu yfir nóttina.

Ofnæmi – Ef þú ert með ofnæmi, þá getur það verið mjög góð hugmynd að fara í bað á kvöldin. Frjókorn og annað, sem þú hefur ofnæmi fyrir, getur sest í húðina og hárið yfir daginn. Þegar þú leggst upp í rúm, enda þessir ofnæmisvaldar í rúminu og þá ertu komin með ofnæmisvald í bælið á hverri nóttu.

Það verður auðveldara að sofna – Ef þú átt erfitt með að sofna, þá er gott ráð að skella sér í bað. Það lætur mann slaka á og líkamshitinn lækkar. Lægri líkamshiti auðveldar þér að oft að sofna og því er kvöldbað góð hugmynd. Mælt er með að fara í bað um einni og hálfri klukkustund fyrir svefntímann.

Þú getur minnkað stressið – Þegar þú ferð í bað, þá minnkar kortisólmagnið í líkamanum. Það safnast fyrir í líkamanum þegar við erum stressuð og það er ekki gott að hafa of mikið af því í líkamanum. Að fara í bað á kvöldin getur hjálpað þér að losna við stressið.

Meira kynlíf – Það er auðvitað bara enn betra að stunda kynlíf ef þátttakendurnir eru hreinir. Þess vegna mun það líklega stuðla að aukinni kynlífsiðkun ef þú/þið farið í bað á kvöldin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti

Trump er ekki ósnertanlegur – Svona er hægt að koma honum úr embætti
Pressan
Í gær

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Í gær

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku

Kviðdómendur grétu við upptöku af síðustu augnablikum sjö ára stúlku
Pressan
Fyrir 2 dögum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans