fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026
Fréttir

Landsréttur staðfesti dóm yfir konu sem frelsissvipti og misþymdi Tinnu Guðrúnu Barkardóttur í Vinakoti

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 19. mars 2026 16:00

Tinna Guðrún Barkardóttir. Skjáskot Kveikur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Önnu Karen Thorlacius fyrir stórfellda líkamsárás í marsmánuði árið 2022.

Árásin var framin í Vinakoti, búsetuúrræði í Hafnarfirði fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda. Árásarþoli var starfskona á Vinakoti, Tinna Guðrún Barkardóttir, en málið vakti mikla athygli og hefur töluvert verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Tinna Guðrún lýsti meðal annars árásinni og afleiðingum hennar í sjónvarpsþættinum Kveiki árið 2023.

Sjá einnig: Dómur fallinn yfir konunni sem frelsissvipti og misþymdi Tinnu Guðrúnu Barkardóttur í Vinakoti

Anna Karen reif í Tinnu Guðrúnu þar sem sú síðarnefnda sat í sófa, skellti henni á gólfið og dró hana um íbúðina. Hún reif í hár hennar og sló höfði hennar ítrekað í gluggakistu, hurðar og veggi. Mikill munur var á líkamsburðum kvennanna tveggja, Önnu Karen í vil, og auk þess glímdi Tinna Guðrún við heilsufarsvandamál, sem Önnu Karen var kunnugt um, en heilsufar Tinnu Guðrúnar gerði henni ennþá erfiðara um vik að verja sig en ella.

Anna Karen var á 19. ári þegar hún framdi árásina og var það virt henni til refsilækkunar. Niðurstaðan var 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Anna Karen var jafnframt dæmd til að greiða Tinnu Guðrúnu fjórar milljónir króna í miskabætur og tæplega 4,5 milljónir í sakarkostnað.

Landsréttur hefur núna staðfest þennan dóm.

Anna Karen neitaði sök og bar við sjálfsvörn. Þeirri vörn hafa bæði héraðsdómur og Landsréttur hafnað en í niðurstöðu Landsréttar segir:

„Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms og með hliðsjón af þeim sérfræðigögnum sem lögð hafa verið fyrir Landsrétt, sem að framan eru rakin, er staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærðu fyrir þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru. Þá hafa engin haldbær rök verið færð fyrir þeirri vörn ákærðu að uppfyllt séu skilyrði neyðarvarnar í málinu. Um var að ræða vísvitandi líkamsárás og hlaut brotaþoli af henni stórfellt líkams- og heilsutjón. Atlaga ákærðu var langvarandi, harkaleg og beindist meðal annars að höfði brotaþola en lagt er til grundvallar að hún hafi ítrekað barið höfði brotaþola í gluggakistu. Þá var ákærðu kunnugt að brotaþoli var lömuð á vinstri hendi og gat ekki dulist að hún átti erfitt með að verjast árásinni. Að framangreindu virtu verður talið að ákærða hafi í það minnsta látið sér afleiðingar líkamsárásarinnar í léttu rúmi liggja og verða þær virtar henni til ásetnings…“

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu

Hagar styrkja níu frumkvöðlaverkefni í matvælaframleiðslu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“

Úkraínskur hermaður hakkaði sig inn á fund hjá rússneska hernum – „Ég drep ykkur alla“