fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Pressan
Sunnudaginn 1. mars 2026 07:30

Hér blómstrar ástin. Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú vilt vel og þú elskar af öllu hjarta en ef þú býrð ekki yfir hæfileikanum til að taka eftir þínu eigin mynstri þá ná tilfinningar þínar kannski aldrei til hins aðilans sem þú vilt svo gjarnan ná til.

Í kvikmyndum virðist vera sáraeinfalt að verða ástfanginn, allt endar vel og þau lifa hamingjusöm til æviloka. En raunveruleikinn er öðruvísi.

Ástin týnist oft vegna misskilnings, varnarviðbragða eða af ótta við að standa uppi varnarlaus. Það er mjög eðlilegt að þrá að tengjast einhverjum ástarböndum, að finna að einhver taki eftir manni og að maður sé elskaður. En það krefst meira en bara sterkra tilfinninga að bjóða upp á heilbrigða og varanlega ást. Það krefst sjálfsvitundar.

Sjálfsvitund í ást snýst um að hlusta á eigin hugsanir, venjur og tilfinningar og skilja hvernig þær hafa áhrif á sambandið. Forbes skýrir frá þessu.

Traust í ástarsambandi hefst með því að vera hreinskilinn við sjálfan sig – Ekta ástarsambönd byggjast ekki bara á ást, heldur einnig virðingu, samskiptum og trausti. Þetta hefst með því að vera hreinskilinn við sjálfan sig.

Ímyndaðu þér að þú óskir þér ástar en sért hræddur við hana. Þú þráir nánd en dregur þig í hlé þegar alvara færist í leikinn. Þú veist að þú vilt ást en þú forðast að játa að þú óttast hana einnig. Án þess að viðurkenna það, þá endurtekur þú sama mynstrið.

Rannsókn frá 2025 sýndi að pör, sem tjá óskir sínar og skilja óskir hins aðilans, eru ánægðari og tilbúin til að þróa sig.

Þegar þú bælir raunverulegar tilfinningar þínar eða þarfir, veldur það innri baráttu sem hefur áhrif á ástarsambandið. Að vera hreinskilinn við sjálfan þig, veitir þér sjálfsvitund sem er mikilvæg fyrir sambandið.

Öll sambönd munu losa um tilfinningar hjá þér – Þegar þú bælir tilfinningarnar eða þarfirnar veldur það innri átökum sem hafa áhrif á ástarsambandið.  Að vera hreinskilinn við sjálfan sig veitir þér sjálfsvitund sem kemur fram í sambandinu sem áreiðanleiki.

Öll ástarsambönd losa um tilfinningar hjá þér – Í sérhverju ástarsambandi munu gömul sár eða óöryggi vakna til lífsins. Skiptir þá engu þótt þú sért venjulega í góðu jafnvægi, þú getur endað í deilum ef þú þekkir ekki eigin viðbrögð.

Sjálfsvitund hjálpar þér við að staldra við og velja betri viðbrögð. Í staðinn fyrir að springa getur þú sagt: „Mér finnst ég svolítið óöruggur í dag, getum við talað um eitthvað annað“

Rannsóknir hafa sýnt að fólk, sem býr yfir góðri sjálfsstjórn, er í meira jafnvægi í ástarsamböndum og tekst á við tilfinningar sínar á heilbrigðari hátt.

Sjálfsvitund hjálpar þér að læra að þekkja sjálfan þig og setja mörk – Ef þú hefur engin mörk, þá er hætta á að þú glatir sjálfum þér í ástarsambandinu. Sjálfsvitund hjálpar þér að vita hvað þú hefur þörf fyrir og að miðla því án þess að finna til sektarkenndar.

Rannsóknir hafa sýnt að ef mörk eru ekki til staðar, þá getur það valdið óánægju og jafnvel fíkn. Margir reyna að vera „allt“ fyrir hinn aðilanna en týna sjálfum sér í ferlinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO