fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Einkenni hjartaáfalls hjá konum eru oft öðruvísi en hjá körlum

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 18:30

Mynd:Pexels.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar konur fá hjartaáfall er það oft ekki eins og hin algenga mynd af manneskju sem fær brjóstverki og hnígur niður en þannig koma hjartaáföll oft fram hjá körlum.

Einkenni hjartveiki og hjartaáfalls eru almennt minna áberandi og koma í stigum. Þetta gerir að verkum að það er erfitt að átta sig á að um hjartaáfall er að ræða.

Í staðinn fyrir mikinn verk í miðjum brjóstkassanum, segja margar konur að þær hafi fundið fyrir óþægindum eða þrýstingi á brjóstkassann, oft lýst sem þyngslum, brunatilfinningu eða jafnvel meltingarvandræðum. Þetta getur leitt út í bakið (sérstaklega á milli herðarblaðanna), í kjálkann, hnakkann, axlirnar eða handleggina án þess að vera nokkru sinni tengt við hjartað.

Skyndileg andnauð, jafnvel í hvíld, er algengt merki sem og mikil og óútskýranleg þreyta sem getur staðið yfir dögum eða vikum saman áður en konan fær hjartaáfall.

Þess utan getur ógleði, uppköst, kaldsviti, svimi eða skyndilegur kvíði verið merki um yfirvofandi hjartaáfall.

Vísindamenn við University Medical Center Utrecht í Hollandi rannsökuðu málið og komust að þeirri niðurstöðu að einkenni hjartaáfalls séu oft eins hjá körlum og konum en að sum séu mun algengari hjá konum. Þetta eru andnauð, ógleði og uppköst og bak- eða magaverkir.

Rannsókn, sem American Heart Association gerði, syndi að 40% kvenna fá ekki venjulega brjóstverki þegar þær fá hjartaáfall. Hjá körlum er hlutfallið 20%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu