fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026
Pressan

Harmleikur þegar yfir 70 tígrisdýr drápust

Pressan
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 16:30

Gestir Tiger Kindom Chiang Mai geta meðal annars klappað dýrunum. Mynd/Getty (Photo by Stringer/Anadolu Agency via Getty Images)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Chiang Mai, borg í norðurhluta Taílands, rannsaka nú dauða yfir 70 tígrisdýra á tveimur starfsstöðvum Tiger Kindom Chiang Mai-dýragarðsins á svæðinu.

Alls drápust 72 tígrisdýr á innan við tveimur vikum og segja yfirvöld að veirusjúkdómur sé líklegur sökudólgur. BBC greinir frá þessu.

Sýni sem tekin voru úr dýrunum leiddi í ljós að þau voru smituð af hundapest (e. canine distemper virus) sem getur verið býsna skæð. Þá leiddu sýnatökur í ljós að hluti dýranna var smitaður af bakteríu sem tengist öndunarfærasjúkdómum.

Leifar dýranna hafa nú verið urðaðar og sögðu embættismenn á blaðamannafundi í vikunni að engin smit hefðu greinst í mönnum og búið væri að koma í veg fyrir útbreiðslu pestarinnar.

Alls voru rúmlega 240 dýr á tveimur starfsstöðvum Tiger Kingdom Chiang Mai og drápust sem fyrr segir 72 þeirra. Verið er að rannsaka hvaðan smitið kom.

Hundapest er mjög smitandi sjúkdómur sem ræðst á öndunarfæri, meltingarfæri og taugakerfi hýsilsins. Þótt hún finnist oftast í hundum getur hún einnig sýkt stór kattardýr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Ert þú alltaf með vatn á náttborðinu? – Þá skaltu lesa þetta

Ert þú alltaf með vatn á náttborðinu? – Þá skaltu lesa þetta
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna

Þessi algenga hegðun karla pirrar meirihluta kvenna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi drykkir geta verið slæmir fyrir blóðþrýstinginn

Þessi drykkir geta verið slæmir fyrir blóðþrýstinginn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sleikir hundurinn þinn hendurnar þínar oft? – Þetta eru skilaboðin sem hann sendir með því

Sleikir hundurinn þinn hendurnar þínar oft? – Þetta eru skilaboðin sem hann sendir með því
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir ekki óeðlilegt að fólki líki ekki við makann

Segir ekki óeðlilegt að fólki líki ekki við makann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þetta er kynlífsstellingin sem körlum og konum þykir „ein sú versta“

Þetta er kynlífsstellingin sem körlum og konum þykir „ein sú versta“