fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þetta áttu að gera fyrst á morgnana til að vera glaður allan daginn

Pressan
Mánudaginn 9. febrúar 2026 06:30

Það þarf að byrja morguninn á sem bestan hátt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgnarnir eru erfiðir fyrir marga vegna þreytu og því þarf ekki mikið til að pirringur grípi um sig. Stress og svefnskortur gera mörgum erfitt fyrir við að byrja daginn í góðu skapi.

Í umfjöllun HuffPost um málið kemur fram að sérfræðingar bendi á að það þurfi bara að gera smávegis breytingu á morgunrútínunni til að hafa áhrif á hvernig restin af deginum verður.

Fyrsta breytingin er að tengja nýjan hollan vana við rútínu sem maður hefur nú þegar. Murray Zucker, sálfræðingur, sagði að lykillinn sé að byrja með einn einfaldan vana og binda hann við eitthvað vel þekkt. „Maður tengir vanan við rútínu, byrjar hægt og byggir þetta upp hægt og rólega,“ sagði hann og lagði áherslu á endurtekning og staðfesta séu lykilatriði í þessu samhengi.

Annað ráð er að fjarlægja símann úr svefnherberginu. Allison Task, markþjálfi, sagði þetta vera ófrávíkjanlega kröfu hennar þegar hún vinnur með fólki. Hún segir að með þessu fái umheimurinn tækifæri til að stýra skapinu frá fyrstu morgunstund. Rannsóknir hafa þess utan tengt notkun samfélagsmiðla og mikinn fjölda tölvupósta við minni vellíðan. Þá getur skjánotkun truflað svefninn.

Zucker benti á að einnig sé mikilvægt að breyta því hvernig maður talar við sjálfan sig, margir tali neikvætt við sjálfa sig og það gerist aðallega á morgnana. Hann ráðleggur fólki að nota einfalda tækni til að breyta þessu, að nota sitt eigið nafn. „Ef þú notar nafnið þitt í einræðu þinni, hefur þú frekar tilhneigingu til að fylgja eigin ráði,“ sagði hann.

Hann sagði einnig að mikilvægt sé að eiga í samskiptum við annað fólk og að þau samskipti megi gjarnan hefjast strax að morgni. „Myndaðu tengsl við manneskju sem þú berð hlýjan hug til,“ sagði hann.

Margir sérfræðingar benda einnig á mikilvægi þess að fólk einblíni á það sem það er þakklátt fyrir. Rannsóknir hafa sýnt að fólk, sem gerir það, fær mörg stig þegar mat er lagt á hversu vel það þrífst og hversu hamingjusamt það er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér