fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fékk þungan fangelsisdóm fyrir að vanrækja blinda dóttur sína

Pressan
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 21:30

Doraelia Espinoza. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona í Albuquerqe í Nýju-Mexíkó, Bandaríkjunum, Doraelia Espinoza, hefur verið dæmd í 15 ára fangelsi fyrir vanrækslu á barni sínu sem leiddi til dauða  þess.

Þann 3. maí árið 2022 kom Doraelia, sem þá var 32 ára, með 16 ára gamla dóttur sína á sjúkrahús. Barnið sýndi engin viðbrögð, sem von var, því hún var látin og hafði verið það í nokkurn tíma. Rannsókn leiddi í ljós að stúlkan hafði verið blind og þjáðst af flogaveiki. Er hún lét lífið var hún vannærð og vóg undir 20 kg. Lirfur iðuðu í holdi stúlkunnar og útbrot voru víða á líkama hennar. Blóð, saur og flugur voru út um allt í herberginu hennar.

Árið 2019, þegar stúlkan var 12 ára, hafði móðir hennar verið kærð fyrir grimmd í garð barns og að svipta það fæði, klæði og skjóli. Doraelia mætti ekki við þau réttarhöld og handtökuskipun var ekki gefin út á hana fyrr dóttir hennar lést árið 2022.

Saksóknari í málinu sagði að það snerist ekki um óhapp eða slaka dómgreind heldur væri hér um að ræða langvarandi ofbeldi og vanrækslu í garð barnsins.

Doraelia sagði hins vegar við réttarhöldin að hún væri ekki slæm manneskja heldur vinnusöm móðir sem gerði allt fyrir börnin sín.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér