fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

„Þessi mál standa mér afar nærri. Þau hafa haft bein og óbein áhrif á líf mitt“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 08:00

Líf Magneudóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi borgarstjórnar í dag verður meðal annars fjallað um skýrslu um starfsemi vöggustofa árin 1974-1979. Líf Magneudóttir, oddviti VG í borgarstjórn, deilir af því tilefni persónulegri færslu og myndum, og segir málið hafa haft bein og óbein áhrif á líf sitt alla tíð.

„Þessi mál standa mér afar nærri. Þau hafa haft bein og óbein áhrif á líf mitt alveg frá upphafi. Eins og mörg ykkar vita var faðir minn Bárður einn af Breiðavíkurdrengjunum. Oft hefur mér fundist kerfið hafa rænt honum frá mér og rænt mig einhverju. En það er langt síðan og við höfum bæði unnið úr því á okkar hátt. Og auðvitað snýst þetta ekki um mig. Þetta snýst um réttlæti þeirra sem hafa þurft að þola harðræði og ofbeldi og afskiptaleysi í fortíð og líka hvernig við komum í veg fyrir það framvegis.“

Líf segir málið snúast um þá grundvallarspurningu í samfélagi, „hvernig reynum við að milda tjónið af skakkaföllum tilverunnar og hvað stjórnvöld geta gert til bæta fyrir missi margra og tjón fólks og áföll. Við eigum að vera löngu búin að afgreiða ný lög um sanngirnisbætur frá Alþingi sem skipta máli og eru ekki bara plástur. Það að gera vel felur ekki bara í sér einhverja fjárupphæð heldur líka alhliða stuðning í formi þess sem þolendur þurfa.

Bárður faðir minn hefur oft sagt, Breiðavík er víða. Munum það.“

Með færslu sinni deilir Líf tveimur persónulegum myndum sem hún segist hafa dvalið lengi við að deila, því myndirnar eru bæði af persónulegum og pólitískum toga.

„Myndin er síðan af Bárði föður mínum nýkomnum frá Breiðavík árið 1966 og okkur saman árið 1977 í heimsókn hjá ömmu Sigrúnu, föðurömmu minni.“

Líf rekur að síðasta fimmtudag fékk borgarráð yfirferð á starfsemi vöggustofa árin 1974-1979. Um er að ræða síðasi hluta athugunarinnar á aðbúnaði og aðstæðum barna sem vistuð voru á vegum reykvískra stjórnvalda í vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Fyrri athugunin var sett af stað 2022 og náði yfir tímabilið 1949–1973. Eins og áður sagði er skýrslan á dagskrár fundar borgarstjórnar sem hefst kl. 12 í dag.

„Heilt yfir eru niðurstöðurnar átakanlegar en ég ætla ekki að fara yfir einstaka áfellisdóma eða bera saman þessi tímabil. Við þurfum að draga lærdóm af þessu og axla ábyrgð. Hið opinbera á að tryggja að öll börn geti alist upp við kærleika, umhyggju og aðstæður sem styðja við þroska þeirra, heilbrigði og vöxt. Og sérstaklega þarf að styðja við börn sem fæðast í þennan heim sem hafa lítil eða engin tækifæri vegna aðstæðna sinna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“