fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Dramb er falli næst – Sjálfstæðisflokkurinn toppar á vitlausum tíma og nú liggur leiðin niður

Eyjan
Laugardaginn 10. janúar 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Björnsdóttir verður fyrsti leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borginni sem verður ekki einnota allt frá árinu 1998. Hún verður þá hin fyrsta hjá flokknum sem fær að spreyta sig tvisvar á þessari öld. Síðast þegar Sjálfstæðisflokkurinn tefldi fram borgarstjóraefni í tvennum kosningum var þegar Árni Sigfússon leiddi árið 1994 og svo aftur árið 1998. Flokkurinn tapaði í bæði skiptin.

Leiðtogi sem fær að spreyta sig tvisvar hjá Sjálfstæðisflokknum er engin trygging fyrir völdum í borginn eins og dæmið af Árna sýnir. Hann var engu að síður mjög hæfur stjórnmálamaður, með mikla reynslu á sviði borgarmála, og hafði meðal annars verið formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Engu að síður tapaði Sjálfstæðisflokkurinn fyrir R-lista Ingibjargar Sólrúnar bæði árið 1994 og einnig 1998. Enn á ný bar R-listinn sigurorð af lista Sjálfstæðisflokksins árið 2002 þegar Björn Bjarnason leiddi listann. Þá var tapið stórt og tilfinnanlegt.

Orðið á götunni er að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hafi komið fram í viðtali við Morgunblaðið í vikunni af miklu oflæti og hroka. Hún réði sér greinilega ekki fyrir kæti yfir því að Guðlaugur Þór Þórðarson býður sig ekki fram gegn henni og flokkurinn mælist vel í skoðanakönnun fimm mánuðum fyrir kosningar. Hildur talar eins og flokkur hennar sé búinn að vinna mikið á og sé kominn til valda. Það er mikill misskilningur enda eru 4-5 mánuðir býsna langur tími í stjórnmálum. Vika er meira að segja langur tími í stjórnmálum.

Haft er eftir Hildi á forsíðu Morgunblaðsins að verkefnið verði að fjalla um viðskilnað Samfylkingarinnar „sem blasi við öllum borgarbúum.“ Svo talar hún um að „taka verði á bágri fjárhagsstöðu borgarinnar,“ sem ekki verði auðveldari viðfangs í efnahagslægð. Segir svo af sínu alkunna lítillæti: „Við vitum vel að við munum ekki taka við góðu búi … Þetta verður ekki auðvelt.“ Það sem vert er að hafa í huga vegna þessara stóryrða Hildar er að fjárhagur borgarinnar er mjög sterkur enda eru eignir borgarinnar gríðarlegar, andstætt því sem önnur sveitarfélög geta státað af. Og ekki er um neina efnahagslægð að ræða á Íslandi – nema bara þegar maður les Morgunblaðið.

Kosningarnar eru ekki fyrr en um miðjan maí. Hildur hefur ekki unnið neinn sigur og flokkur hennar er ekki kominn til neinna valda í höfuðborginni. Það er því engan veginn tímabært að tala um að taka við völdum – „ekki góðu búi.“ Það er alls óvíst að það lendi á Hildi og félögum að taka við einhverju búi!

Orðið á götunni er að ekki megi gleyma því að fyrir borgarstjórnarkosningar fyrir fjórum árum hagaði Hildur sér með svipuðum hætti. Hún talaði eins og flokkur hennar væri búinn að vinna stórsigur og hún væri um það bil að taka við embætti borgarstjóra. Gárungarnir sögðu þá að hún væri búin að ráða aðstoðarfólk og kaupa sér borgarstjóradragtir af fínustu gerð! En allt kom fyrir ekki.

Eyþór Arnalds fór fyrir flokknum árið 2018 og náði fylgi 30,8 prósenta kjósenda sem skilaði flokknum átta borgarfulltrúum. Hann fékk ekki að reyna aftur því að Hildur taldi sig geta gert betur. Niðurstaða kosninganna var sú að Sjálfstæðisflokkurinn fékk 24,5 prósenta fylgi, sex menn kjörna og Hildur tapaði þannig tveimur sætum í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hélt áfram stöðu sinni í valdalausum minnihluta. Þegar Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, sem fór úr engum borgarfulltrúa í fjóra, ákvað að plotta yfir sig, felldi þáverandi meirihluta og reyndi að mynda nýjan meirihluta með Hildi og Sjálfstæðisflokknum, þá klúðraðist það. Sjálfstæðisflokkurinn hélt áfram eyðimerkurgöngu sinni í borginni frá árinu 1994, ef undan eru skilin tvö skeið á árunum 2006 til 2010.

Sjálfstæðisflokkurinn sér ofsjónum yfir því að Samfylkingin hefur öðrum fremur haft undirtökin í stjórn borgarinnar í meira en 30 ár. Um þetta segir Hildur í umræddu viðtali: „Samfylkingin hefur stýrt þessari borg í meira og minna í nær þrjá áratugi. Þau geta ekkert bara sett nýtt fólk þarna fram og látið sem fortíðin komi þeim ekki við.“

Orðið á götunni er að Hildur sé það ung að hún muni trúlega ekkert eftir því hvernig var háttað um stjórn borgarinnar frá upphafi og fram til ársins 1994. Við erum að tala um tímann frá árinu 1908 til 1994, einungis að fjórum árum undanskildum, 1978 til 1982. Þar er um að ræða 80 ára valdaferil Sjálfstæðisflokksins. Og þeir létu bara eins og „fortíðin kæmi þeim ekki við.“ … Ef miða má við þennan langa valdaferli Sjálfstæðisflokksins þar sem „fortíðin kom þeim ekkert við“ á Samfylkingin enn fyrir höndum langan tíma við völd í borginni.

Í viðtalinu kemur fram að Hildur telji að Samfylkingin ætli að svindla á kjósendum í Reykjavík með því að tefla fram nýju fólki að einhverju marki í komandi kosningum. Vitanlega er ekkert athugavert við það. Það er sennilega mjög heilbrigt að talsverð endurnýjun verði í hópi borgarfulltrúa allra flokka. Samfylking mun tefla fram einhverjum nýjum fulltrúum. Viðreisn mun bjóða fram nýtt fólk. Miðflokkurinn hlýtur að gera það því flokkurinn fékk engan mann kjörinn síðast. Spurning hvort Framsókn nær að endurkjósa leiðtoga sinn eða hverfa til fyrra horfs sem var að fá engan fulltrúa kjörinn. Mun Sjálfstæðisflokkurinn tefla fram „ferskum“ og endurnýjuðum lista? Trúlega ekki. Þau gefa öll kost á sér áfram; Hildur, Kjartan Magnússon, Marta Guðjónsdóttir, Friðjón Friðjónsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Björn Gíslason. Öll munu þau berjast fyrir sætum sínum, enda um mikla tekjuhagsmuni að ræða. Verður þeim ýtt út eða munu þau skreyta endurnýjan og „ferskan“ framboðslista Sjálfstæðisflokksins sem Hildur fær að leiða aftur að þessu sinni.

Þeir sem halda að leikir vinnist í upphafi leiks eða í fyrri hálfleik verða jafnan fyrir miklum vonbrigðum því dramb er falli næst.

Orðið á götunni er að komandi borgarstjórnarkosningar verði tvísýnar þar sem fyrri turnar megi búast við nýjum, jafnvel óvæntum, sigurvegurum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki