fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hún hvarf og fannst síðar myrt í skógi – Lögreglan telur sig hafa fundið morðingjann

Pressan
Laugardaginn 10. janúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meira en hálfu ár eftir að Mallory Barbour, 27 ára, hvarf fyrst frá heimili sínu í norðvesturhluta Washington-ríkis segist lögreglan telja sig hafa náð manninum sem ber ábyrgð. Barbour, sem var 27 ára, sást yfirgefa heimili sitt í lok júní og fannst síðar látin í skógi í september.

Sýslumannsskrifstofa Mason-sýslu sagði í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þann 7. janúar að rannsóknarlögreglumenn hafi handtekið 45 ára gamlan mann frá Bremerton í tengslum við dauða Mallory Barbour og sett hann í fangelsi Mason-sýslu.

„Hugur okkar er hjá fjölskyldu Mallory og vinum sem hafa orðið fyrir áhrifum af þessum harmleik,“ stóð í færslunni.

Mallory Barber

Lögreglan hefur ekki nafngreint manninn sem handtekinn var í tengslum við dauða Barbour, þó að gögn úr fangelsi Mason-sýslu sýni að maður hafi verið handtekinn og ákærður fyrir manndráp miðvikudaginn 7. janúar. Það er ekki ljóst hvort lögreglan telur að grunaði hafi einhver fyrri tengsl við Barbour.

Tilkynnt var um hvarf Barbour síðasta sumar eftir að hún sást síðast yfirgefa heimili sitt í Bothell í Washington-fylki þann 24. júní 2025. Lík hennar fannst 15. september 2025 í afskekktum skógi við þjóðveg 3 og Pickering Road, 145 kílómetra akstur frá heimili hennar. Yfirvöld hjá lögregluembætti Mason-sýslu sögðu að lík Barbour hefði fundist með fjölmörgum skotsárum og hefði verið skilið eftir í skógi við þjóðveg Washington-ríkis í marga mánuði.

Fjölskyldumeðlimir og vinir eru í  áfalli yfir morðinu á Barbour og einn vinur hennar, Ashley Ainge, sagði: „Mallory var ótrúleg, Mallory var svo full af ást og líf.,“

Móðir Barbour sagði við fjölmiðla að dóttir hennar væri góðhjörtuð og jákvæð manneskja.

„Hún var frábær manneskja, hún á þetta ekki skilið, hún gerði ekkert rangt og hún var bara á slæmum stað á slæmum tíma,“ sagði Denise Barbour. „Að vita bara til að hún myndi lifa góðu lífi, að hún yrði hamingjusöm og gæti unnið í samfélaginu okkar. Að eiga maka, kannski jafnvel barnabörn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér