fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Arnar Gunnlaugs í ítarlegu viðtali: Landsliðið tók stór skref í fyrra en í ár verða úrslitin að fylgja með

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. mars 2026 15:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari opinberaði leikmannahóp sinn fyrir komandi vináttulandsleiki gegn Kanada og Haítí ytra undir lok mánaðar í dag. Hann telur mikilvægt að ná í úrslit í leikjunum en mun dreifa álaginu eitthvað og leyfa mönnum að spreyta sig.

Íslandi mistókst að komast í umspil um sæti á HM í gegnum undankeppnina í fyrra og það sveið. Liðið sýndi þó góðar frammistöður á mörgum köflum og vill Arnar byggja á því. Nú verði úrslitin hins vegar að fara að fylgja. Strákarnir okkar hefja svo leik í C-deild Þjóðadeildarinnar í haust, þar sem markmiðið er sigur.

video
play-sharp-fill

„Ég er að vonast til þess að þetta ár verði miklu úrslitamiðaðra í fyrra. Við vorum auðvitað að leitast eftir úrslitum í fyrra en frammistöðum líka að því leyti að við vildum byggja upp ákveðinn leikstíl og gera okkur gildandi. Við viljum halda í það sem við gerðum vel á síðasta ári en til að íslenskur fótbolti nái aftur sömu hæðum getum við ekki falið okkur á bak við það, úrslitin verða að fylgja í kjölfarið,“ sagði Arnar við 433.is í dag.

„Við viljum byrja árið vel, góðir leikir á móti sterkum liðum, sem fleytir okkur á jákvæðan hátt inn í haust sem verður krefjandi. Ekki af því við erum að fara að spila við bestu þjóðir í heimi. Það fylgir því ábyrgð að stýra leikjum og ég held við verðum mikið með boltann. Og þá vonandi mun síðasta ár hjálpa því við stigum stór skref fram á við hvað varðar að geta stýrt leikjum betur.“

Arnar var spurður að því hvort margir leikmenn fengju mínútur í komandi verkefni.

„Haustið er svolítið á bak við eyrað. Svo er þetta alltaf spurning um hversu langt þú vilt ýta mönnum. Við viljum alls ekki gera það í tilfelli Orra og Hákon er búinn að eiga erfitt og krefjandi tímabil, er að fara í gegnum krefjandi lokakafla á tímabilinu. Þetta er alltaf spurning um hvað er best fyrir leikmanninn þannig að hann lendi ekki í einhverju veseni. En að sama skapi vill maður spila sterku liði í báðum leikjunum, en óhjækvimlega munum við dreifa álaginu aðeins. Þá geta leikmenn líka bara sýnt að þeir hafi það sem til þarf til að vera með í haust.“

Ítarlegt viðtal við Arnar um komandi landsleiki, valið á hópnum og fleira til er í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni

Hægt að kaupa miða á leikinn við Argentínu – Verður aðeins í annað skiptið í sögunni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sjáðu myndbandið: Leikmenn Arsenal sturluðust úr gleði er titillinn var í höfn

Sjáðu myndbandið: Leikmenn Arsenal sturluðust úr gleði er titillinn var í höfn
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Svakaleg tíðindi frá Englandi – Southampton vikið úr keppni

Svakaleg tíðindi frá Englandi – Southampton vikið úr keppni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur

Manchester City gæti þurft að greiða Chelsea bætur
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Dómarar játa mistök – Gáfu United mark sem átti að dæma af

Dómarar játa mistök – Gáfu United mark sem átti að dæma af
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Talið að þetta séu leikmennirnir sem Mourinho vill kaupa – Þetta gæti orðið byrjunarliðið

Talið að þetta séu leikmennirnir sem Mourinho vill kaupa – Þetta gæti orðið byrjunarliðið
Hide picture