fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Afar takmörkuð trú á Íslandi

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 16:00

Frá æfingu liðsins í Mexíkó. Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið mætir Mexíkó í vináttulandsleik þar ytra klukkan 02 í nótt að íslenskum tíma. Veðbankar hafa vægast sagt ekki mikla trú á Íslandi í leiknum.

Leikurinn fer fram utan opinbers landsleikjaglugga og því er íslenski hópurinn aðallega skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni. Það eru þó þekktar stærðir eins og Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson í hópnum.

Lið Mexíkó í nótt er alfarið skipað leikmönnum úr deildinni þar í landi, en þó eru einhverjir þar sem gera sér vonir um að vera valdir fyrir lokakeppni HM, sem fer einmitt fram í Mexíkó, auk Bandaríkjunum og Kanada, í sumar. Verkefni næturinnar er því ærið fyrir Strákanna okkar.

Veðbankar eru sem fyrr segir á því að Mexíkó vinni öruggan sigur og víða er stuðull á íslenskan sigur vel yfir 10. Íslenska liðið mun þó án efa reyna að gefa þessum spám langt nef.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir

Rodri sektaður um meira en 13 milljónir