fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Íslenska liðið orðið vart við mikinn viðbúnað vegna ástandsins í Mexíkó – Halda sínu striki eins og staðan er

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlalandsliðið og hópurinn sem því fylgir heldur sínu striki í Mexíkó þrátt fyrir eldfimt ástand í landinu. Stefnt er að því að æfa í dag og eins og staðan er núna fer leikurinn við heimamenn fram aðfaranótt fimmtudags.

Glæpaforinginn Nemesio Rubén Oseguera Cervantes, kallaður El Mencho, var drepinn af hernum í nótt og í kjölfarið voru bílar brenndir, götum lokað og fleira af hálfu CJNG glæpagengisins. Fjórum leikjum í Mexíkó var frestað í nótt og hefur því verið velt upp hvort vináttuleikur Íslands og Mexíkó fari sömu leið.

Meira
Leikur Strákanna okkar hugsanlega í uppnámi

433.is hafði samband við Ómar Smárason, sviðsstjóra markaðssviðs hjá KSÍ sem er úti með liðinu, og segir hann að liðið stefni að því að æfa í dag samkvæmt áætlun og er unnið út frá því að leikurinn á fimmtudag fari fram. Hópurinn fylgist hins vegar vel með fréttum og fær jafnframt upplýsingar frá yfirvöldum og knattspyrnusambandi Mexíkó, sem og yfirvöldum hér á Íslandi.

Ómar segir þó að hópurinn taki vel eftir þeim viðbúnaði sem er í landinu vegna ástandsins. Miðað við upplýsingar sem þeim er gefið hafa þó ekki verið nein læti í Queretato, hvar leikur Mexíkó og Íslands fer fram og Strákarnir okkar æfa.

Hópurinn gætir fyllsta öryggis samt sem áður og öryggisgæslan í kringum hann er mikill í ljósi ástandsins.

Leikur Íslands og Mexíkó fer að óbreyttu fram klukkan 2 aðfaranótt fimmtudags.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

United bætir kraftmiklum miðjumanni á lista sinn

United bætir kraftmiklum miðjumanni á lista sinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit

Hræðileg paneka spyrna kostaði Brentford – West Ham í átta liða úrslit
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Algjört óveðurský í rekstrinum í Árbæ: Mígandi tap á síðasta ári – Tekjur hrundu en launagreiðslur stóðu í stað

Algjört óveðurský í rekstrinum í Árbæ: Mígandi tap á síðasta ári – Tekjur hrundu en launagreiðslur stóðu í stað
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag

Icelandair flaug stjörnum Liverpool til Tyrklands í dag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Þreyttur á óvissunni hjá Tottenham og íhugar flutninga heim

Þreyttur á óvissunni hjá Tottenham og íhugar flutninga heim
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig

Meira en helmingur liða hófu leik með mínusstig