fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Kveðst furðu lostinn – „Mér finnst ótrúlegt að Gylfi Þór láti bjóða sér þetta“

433
Þriðjudaginn 10. febrúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menn fettu fingur út í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir vináttuleik gegn Mexíkó í lok mánaðar í Þungavigtinni.

Leikurinn fer fram ytra og er hann spilaður utan opinbers landsleikjaglugga, sem þýðir að hann er nánast eingöngu skipaður leikmönnum úr íslenska boltanum.

„Þegar þessi hópur var tilkynntur sannaðist fyrir mér að þetta verkefni er ekki til neins,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson. Hann og Mikael Nikulásson, annar meðlimur þáttarins, furðuðu sig báðir á háum aldri leikmanna í hópnum.

Gylfi Þór Sigurðsson snýr þá aftur í landsliðið í fyrsta sinn síðan haustið 2024.

„Mér finnst ótrúlegt að Gylfi Þór láti bjóða sér þetta. Arnar er aldrei búinn að velja hann. Hann var frábær í haust, þá átti að velja Gylfa Þór Sigurðsson,“ sagði Kristján hins vegar um það mál.

Leikurinn hefst klukkan 02 að íslenskum tíma aðfaranótt fimmtudagsins 26. febrúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Í gæsluvarðhaldi næsta mánuðinn – Meint fórnarlamb gæti misst sjónina

Í gæsluvarðhaldi næsta mánuðinn – Meint fórnarlamb gæti misst sjónina
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þór selur Balde til Vestra – Gerir þriggja ára samning

Þór selur Balde til Vestra – Gerir þriggja ára samning
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð

Sindri fer frá Keflavík til að styðja við kærustu sína í Svíþjóð
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þarf að borga 57 milljónir í skaðabætur fyrir tvær færslur á X-inu

Þarf að borga 57 milljónir í skaðabætur fyrir tvær færslur á X-inu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Baunar á markvörðinn sem fær samúð margra – Segir honum að taka ábyrgð

Baunar á markvörðinn sem fær samúð margra – Segir honum að taka ábyrgð
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Telur að leikmaður Chelsea gæti farið til Arsenal

Telur að leikmaður Chelsea gæti farið til Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er