
Landsliðskonurnar Arna Eiríksdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir gáfu nokkra miða á landsleikinn við Spán annað kvöld á rúntinum í gær.
KSÍ birti skemmtilegt myndband af þessu á samfélagsmiðlum og tók fólk almennt vel í athæfið, eins og sjá má hér að neðan.
Leikurinn, sem er liður í undankeppni HM á næsta ári, fer fram klukkan 19 annað kvöld á Laugardalsvelli. Stelpurnar okkar hafa þegar tryggt sér þriðja sæti riðilsins og þar með sterka stöðu fyrir dráttinn í umspil um sæti á mótinu.