433

Yrði Scott McTominay lykilmaður hjá Liverpool á kostnað Henderson?

Mynd

Scott McTominay kæmist í byrjunarlið Liverpool á kostnað Jordan Henderson, þetta er skoðun Jamie O´Hara sérfræðings Sky og Talksport.

O´Hara lék lengi vel í ensku úrvalsdeildinni en McTominay er einn af fáum ljósum punktum í leik Manchester United, þessa dagana.

„Hann er 22 ára, hann er framtíðar fyrirliði United. Hann er það góður," sagði O´Hara.

„Hann kæmist í Liverpool liðið, hann myndi kannski ekki byrja alla leiki en hann er góður. Hann myndi passa í lið Liverpool."

„Hann er jafn góður og Henderson í dag og hann verður betri en hann. McTominay væri að spila hjá Liverpool, ef hann væri í þeirra herbúðum."