433

Klopp hefur skapað hefð í rútu Liverpool: Alltaf bjór eftir sigurleiki

Mynd

Það er ansi mikið drukkið af bjór af þjálfara og læknteymi Liverpool miðað við hefð sem Jurgen Klopp, stjóri félagsins hefur skapað.

Eftir útileiki sem vinnast fær Klopp sér bjór í rútunni með starfsliði sínu, leikmenn fá ekki að vera með.

Liverpool vinnur flesta leiki sína og því er yfirleitt baukur um borð á heimleiðinni.

„Við getum ekki skemmt okkur eftir hvern leik, ef við vinnum útileiki þá er smá hefð. Þá fær allt þjálfaraliðið og læknaliðið sér bjór saman í rútunni," sagði Klopp.

„Þetta gerum við í rútunni, þetta er ekkert parý. Bara bjór.“