fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Pressan
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísraelsmenn hafa kallað sendiherra Spánar í landinu á teppið eftir að sjö metra hátt líkneski af Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra landsins, var sprengt í loft upp á hátíð í suðurhluta Spánar um páskana.

Atvikið átti sér stað í bænum El Burgo nærri Malaga 5. apríl, og var 14 kílóum af púðri komið fyrir í líkneskinu áður en það var sprengt í tætlur.

Um er að ræða gamla hefð í bænum og hafa sambærileg líkneski af öðrum þekktum einstaklingum, þar á meðal Donald Trump og Vladimír Pútín, áður verið notuð.

Ísraelsmönnum var ekki hlátur í huga og sakaði ísraelska utanríkisráðuneytið spænsk stjórnvöld um að ala á gyðingahatri. Þá var atvikið endurspegla „kerfisbundna hatursáróðursstefnu“ ríkisstjórnar Pedro Sánchez forsætisráðherra.

Spænska utanríkisráðuneytið hafnaði ásökununum alfarið. Í yfirlýsingu sagði ráðuneytið stjórnvöld „staðráðin í að berjast gegn gyðingahatri og hvers kyns hatri eða mismunun“ og var öllum ásökunum um hið gagnstæða vísað á bug.

Grunnt hefur verið á því góða undanfarin misseri á milli yfirvalda á Spáni annars vegar og Ísrael hins vegar. Spænsk stjórnvöld hafa ítrekað gagnrýnt hernaðaraðgerðir Ísraels sem og loftárásir ísraelska hersins á Líbanon. Þá er skemmst að minnast ákvörðunar spænska sjónvarpsins um að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina vegna þátttöku Ísraels.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið