
Málið vakti mikla athygli í bandarískum fjölmiðlum, en ákærur gegn Waters hafa nú verið felldar niður. Rachel átti yfir höfði sér lífstíðarfangelsi í málinu – jafnvel dauðarefsingu.
Móðir hennar, Marsha Foster, lést 12. júlí 2023 74 ára að aldri eftir langvinn og alvarleg veikindi. Hún var með langt genginn Alzheimer-sjúkdóm og mergæxli og hafði verið á líknandi meðferð í nærri átta mánuði.
Í ítarlegu viðtali við The Guardian lýsir Rachel því þegar síminn hennar hringdi og læknir á hjúkrunarheimilinu þar sem móðir hennar dvaldi á sagði að nú væri stutt eftir. Ef hún vildi sjá móður sína á lífi væri líklega best að hún kæmi sem fyrst.
Þegar Rachel mætti á Marshall Pines-hjúkrunarheimilið í Evans í Georgíu var móðir hennar við dauðans dyr og augljóslega kvalin.
Rachel segir að starfsfólk hefði neitað að gefa móður sinni morfín þrátt fyrir að hún teldi hana þjást. Þá hafi hún gripið til þess að bera á varir móður sinnar fljótandi morfín sem áður hafði verið afhent fjölskyldunni sem hluti af neyðarlyfjasetti fyrir líknarmeðferð. Skömmu síðar lést móðir hennar.
Fjórum klukkustundum eftir andlátið fékk Waters símtal frá útfararstofu þess efnis að ekki yrði hægt að sækja líkið þar sem það hefði verið sent til rannsóknarstofu lögregluyfirvalda í Georgíu. Sama dag gerði lögregla húsleit á heimili Rachel og lagði meðal annars hald á raftæki.
Í meira en ár vissi Waters hvorki hvort hún yrði ákærð né á hvaða grundvelli rannsóknin byggðist. Án dánarvottorðs gat hún ekki gengið frá dánarbúi móður sinnar, selt hús hennar eða stöðvað reglubundnar greiðslur. Hún sagði að á þessu tímabili hefði hún hvorki getað haldið áfram lífi sínu né syrgt móður sína.
Átján mánuðum eftir andlátið voru gefnar út ákærur á hendur henni fyrir manndráp af ásetningi og manndráp af illum ásetningi, sem eru mjög alvarleg brot samkvæmt lögum í Georgíu og geta varðað dauðarefsingu.
Málið vakti hörð viðbrögð og skoðanir um það voru skiptar. Sumir litu á Waters sem dóttur sem hefði reynt að lina þjáningar deyjandi móður sinnar, á meðan aðrir töldu hana hafa gengið of langt. Sjálf sagði hún að almenningur hefði misskilið hvað hefði gerst og að ásakanirnar hefðu eyðilagt líf hennar.
Samkvæmt krufningarskýrslu var dánarorsök Marshu Foster upphaflega skráð sem „bráð morfíneitrun“. Hins vegar sögðu sérfræðingar sem síðar fóru yfir málið að afar erfitt væri að fullyrða út frá fyrirliggjandi gögnum að morfín hefði orsakað dauðann, sérstaklega þar sem Marsha hefði verið á lokastigi líknarmeðferðar.
Lögmaður Waters, Brian Steel, safnaði ásamt fjölskyldu hennar gögnum, álitsgerðum og fræðilegum heimildum um notkun morfíns í líknarmeðferð. Í kjölfarið endurskoðaði réttarmeinafræðingur málið og breytti niðurstöðu sinni þannig að dánarorsök var ekki lengur skilgreind sem manndráp heldur óákveðin. Skömmu síðar féllu saksóknarar frá öllum ákærum.
Waters hefur síðan lýst því að málið hafi kostað hana starfsframa, fjárhagslegt öryggi og tengsl við eftirlifandi fjölskyldumeðlimi. Við leit á nafni hennar á netinu birtast enn fréttir þar sem hún er sögð hafa drepið móður sína, þrátt fyrir að málið hafi aldrei farið fyrir dóm.
Í kjölfar málsins hefur hún hafið baráttu fyrir lagabreytingu sem hún kallar „lög Marshu“. Með henni vill hún að skýrari reglur verði settar um hvaða lyf séu í neyðarsettum fyrir líknarmeðferð, hverjir megi gefa þau og hvernig sú heimild er skjalfest. Markmiðið sé að verja aðstandendur og koma í veg fyrir að aðrir lendi í sambærilegri réttaróvissu.
Í frétt Guardian kemur fram að málið hafi einnig varpað ljósi á djúpt vantraust sem sums staðar ríkir gagnvart líknarmeðferð í Bandaríkjunum. Sérfræðingar sem fjallað hafa um málið segja morfín vera algengt og mikilvægt lyf til að lina verki og mæði hjá deyjandi sjúklingum og hafna því að notkun þess í slíkum aðstæðum jafngildi sjálfkrafa því að dauða sé flýtt.
Waters hefur sjálf ítrekað að hún hafi ekki reynt að stytta líf móður sinnar, heldur viljað tryggja að hún dæi án óþarfa sársauka. Hún segist nú staðráðin í að segja sögu sína opinberlega, bæði til að hreinsa nafn sitt og til að stuðla að breytingum á reglum um líknarmeðferð.