
Á TikTok prófílnum This Mum Cooks var nýlega deilt praktísku ráði til að lengja „líftíma“ eggja. Aðferðin felst einfaldlega í að frysta þau. Fram kemur að til að frysta þau þurfi að taka þau úr skurninni. Það þýðir auðvitað að þú ert með eggjarauðu og eggjahvítu sem þarf að gera eitthvað við. Lausnin er að sögn að hræra eggin saman, eins og þú myndir gera ef þú ert að gera hrærð egg. Síðan eru þau sett í poka og í frysti. Með þessu er auðvelt að nota eggin síðar.
Ef þú vilt frekar skilja hvíturnar frá rauðunum, þá er það í lagi og þú getur fryst þetta í sitt hvoru lagi. Áferð rauðanna getur breyst og þær orðið svolítið hlaupkenndar en það er hægt að koma í veg fyrir það með því að setja smávegis sykur eða salt með í pokann, byggt á hvað þú ætlar að nota eggin í síðar.
Það er hægt að frysta hvíturnar beint en það þarf að lágmarki að hræra rauðurnar aðeins áður en þær fara í frystinn. Geymsluþolið í frystinum er síðan allt að 12 mánuðir.
Þegar kemur að því að nota eggin, er mjög mikilvægt að þíða þau upp á réttan hátt. Með því tryggir þú að áferðin og bragðið séu eins og venjulega. Það á að þíða eggin hægt og rólega upp með því að setja þau í ísskápinn.