
Í umfjöllun Receitas um málið kemur fram að þegar matur er hitaður upp, þá verði að hafa í huga að plast og gler hitni ekki eins.
Gler deilir hitanum jafnt og maturinn verður því allur jafn heitur. Plast getur hins vegar deilt hitanum ójafnt, allt eftir hvernig plast er um að ræða og gæðum þess. Þetta þýðir að hlutar matarins geta orðið mjög heitir en aðrir haldast kaldir. Þetta getur haft áhrif á bæði bragð og öryggi.
Ílátin sjálf breyta ekki næringarefnunum í matnum beint en ef upphitunin er ójöfn, þá geta sum vítamín tapast úr matnum.
Receitas bendir einnig á að plast getur haft áhrif á gæði matarins ef efni úr ílátinu berast í matinn. Örplast getur einnig borist í matinn.
Sumar tegundir plasts innihalda efnið Bisfenol A sem getur borist í mat við upphitun. Rannsóknir hafa tengt þetta efni við margvísleg heilsufarsvandamál, þar á meðal annars truflanir á hormónastarfsemi.
Glerílát eru yfirleitt talin öruggari kostur því engin efni berast úr þeim í matinn og maturinn hitnar jafnt í þeim.