

Í málsókn ferðamanns er skemmtigarðurinn Walt Disney Parks and Resorts sakaður um tvö tilvik af gáleysi.
David Besse krefst skaðabóta sem nema meira en 50.000 dollurum (rúmlega 6 milljónir króna) eftir að hann „var bitinn margoft af veggjalúsum (e. Bed bugs)“ á meðan hann dvaldi á All-Star Sports Resort í Disney þann 15. maí 2022, samkvæmt kæru sem lögð var fram í lok síðasta mánaðar fyrir héraðsdómstól Orange-sýslu í Flórída.
All-Star Sports Resort er hótel staðsett nálægt Disney’s Animal Kingdom skemmtigarðinum, rétt fyrir utan Orlando í Flórída. Hótelið sem er skreytt með keppnisíþróttaþema er hluti af hagkvæmari All-Star dvalarstöðum Disney World, þar á meðal All-Star Music og All-Star Movies dvalarstöðunum.

Besse er sagður hafa „hlotið ör og orðið fyrir líkamstjóni, sársauka og þjáningum, fötlun, andlegri kvöl“ auk „missis á lífsgleði, lækniskostnaðar, tekjutaps, missis á getu til að afla tekna, fjárhagstjóns og eignatjóns“ sem „er bein og nálæga afleiðing af vanrækslu Disney“ samkvæmt fréttum vestanhafs sem fjalla um málið.
„Tjónið er annað hvort varanlegt eða viðvarandi og Besse mun bera tjónið til framtíðar.“
Í dómsskjölunum er þó ekki útskýrt nánar umfang meints fjárhagstjóns Besse.
Hann sakar enn fremur hótelið um að hafa ekki þjálfað viðhalds- og ræstingarstarfsfólk til að framkvæma tíðar skoðanir á herbergjum. Besse heldur því fram að hótelið hafi einnig ekki notað skordýraeitur á göngum og herbergjum og ekki notað dýnuhlífar til að verja gegn vökva og blettum.

Veggjalús, sem á ensku gengur undir heitinu „bed bug“, er skordýr sem sýgur blóð úr fórnarlömbum sínum og hefur fylgt manninum frá örófi alda. Veggjalús er sporöskjulaga, brúnleitt skordýr sem verður um 5 mm á lengd fullvaxið. Hungruð er lúsin flatvaxin en þenst út eftir að hafa sogið blóð og getur þá allt að sjöfaldað þyngd sína. Jafnframt verður liturinn dökkrauðleitur af öllu blóðinu sem hún innbyrðir. Þegar lúsin hefur fengið nóg af blóði leggst hún á meltuna, makast og verpir eggjum. Kvendýrið getur verpt 200500 eggjum á æviskeiðinu. Ungviðið líkist fullorðna dýrinu og þarf að ganga í gegn um fimm hamskipti til að ná fullum þroska. Hver hamskipti kalla á að minnsta kosti einn skammt af blóði, eins og segir í upplýsingabæklingi Umhverfisstofnunar.
Veggjalúsar verður einkum vart á hótelum og gististöðum þar sem ferðamenn eiga leið um eða í vinnubúðum þar sem farand verkafólk heldur til. Veggjalús getur breiðst mjög hratt út með ferðamönnum sem gjarnan gista á mörgum stöðum á skömmum tíma. Hún tekur sér bólfestu í farangri og fötum þeirra og fylgir þeim þannig eftir frá einum stað til annars. Komi veggjalús upp á gististað getur það valdið mikilli truflun á rekstrinum og aðgerðir til þess að losna við hana eru kostnaðarsamar
Veggjalús stingur aðeins þegar hún er á berri húð og oft eru stungurnar nokkrar í röð. Stundum koma blóðblettir í sængurföt þegar veggjalús hefur verið að verki. Maður finnur ekki fyrir sársauka við sjálfa stunguna en einkennin eru útbrot og kláði sem koma fram eftir nokkra daga eða jafnvel vikur. Örfáir fá þó svo lítil einkenni að þeir verða lúsarinnar ekki varir. Ekki hefur verið staðfest að veggjalús beri sjúkdóma á milli manna þótt að fundist hafi í henni sjúkdómsvaldandi örverur.
Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA) telur veggjalús vera „lýðheilsuáhættu“ þó að óþægindin beri ekki sjúkdóma og ráðleggur ferðamönnum að vera á varðbergi.
Hér eru ráð EPA til að forðast veggjalús á ferðalögum: