fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Trump reiknar með „frábærum“ friðarsamningi þó að óvíst sé hvort að Íranir mæti til viðræðnanna

Pressan
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 13:13

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump er sannfærður um að Bandaríkin muni á endanum ná „frábærum samningum“ við Íran til að binda endi á stríðið sem nú hefur staðið yfir frá 28. febrúar. Þetta segir forsetinn í samtali við CNBC.

„Ég held þeir hafi ekki um annað að velja,“ sagði Trump sem trúir því að friðarviðræðurnar sem nú eru að hefjast muni bera góðan árangur. „Við erum búin að tortíma sjóhernum þeirra, við höfum tortímt flughernum og við höfum tortímt leiðtogum þeirra.“

Trump segir að það hafi flækt stöðuna að vissu leyti að Bandaríkin hafi ráðið leiðtoga Írans af dögum, en þeir leiðtogar sem tóku við séu mun skynsamari en forverar þeirra.

„Þetta eru stjórnarskipti, sama hvað þú vilt kalla það, sem er ekki eitthvað sem ég sagðist ætla að gera, en ég hef gert það með óbeinum hætti.“

Trump segist þó aðspurður ekki vera tilbúinn til að framlengja vopnahlé þó að friðarviðræður dragist á langinn. „Það vil ég ekki gera. Við höfum ekki það mikinn tíma.“

Forsetinn telur Bandaríkin vera í sterkri stöðu í viðræðunum og muni því enda með frábæran friðarsamning. Friðarviðræðurnar fara fram í Pakistan og mun varaforseti Bandaríkjanna, JD Vance, koma þar fram sem fulltrúi þjóðar sinnar ásamt tveimur öðrum embættismönnum. Ekki er víst hvort að Íran muni mæta til viðræðnanna en Trump hefur tekið fram að ef ekki tekst að ná samningum áður en vopnahlé rennur út þá muni Bandaríkin hefja loftárásir á ný. Tíminn er naumur því vopnahléinu lýkur á morgun.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið