fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 17:30

Teikning sem lögreglan lét gera af morðingjanum á sínum tíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í 21 ár gekk morðingi eldri hjóna laus í Svíþjóð en nú bendir flest til að tími hans úti í hinu frjálsa samfélagi sé liðinn.

Í rúma tvo áratugi var morðið á hjónunum óleyst og þótti mikil ráðgáta en nú virðist lögreglan hafa leyst málið.

Maður á fimmtugsaldri var nýlega handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um að hafa myrt hjónin á sveitabæ í Brattås, sem er nærri Härnösand, 2005 að sögn sænskra fjölmiðla.

Það voru þau Tor Öberg, 70 ára, og Gerd Viklund, 67, sem voru myrt á heimili sínu. Lögreglan fann DNA úr meintum morðingja á vettvangi en þrátt fyrir umfangsmikla rannsókn og rannsóknir á DNA úr mörg hundruð manns tókst ekki að finna morðingjann.

Nýlega beitti lögreglan nýrri aðferð þegar hún leitaði að ættingjum morðingjans í DNA-gagnagrunnum og rakti sig síðan fram til hans. Þessari aðferð hefur mikið verið beitt í Bandaríkjunum en stutt er síðan heimilað var að beita henni í Svíþjóð.

Aftonbladet segir að hinn handtekin hafi lifað rólegu lífi árum saman í miðju landinu. Nágrannar hans segja hann hafa verið nánast ósýnilegan. Hann sé einfari sem hafi aldrei gefið sig að neinum.

Hann er einhleypur, barnlaus og hefur aldrei hlotið refsidóm. Tekjur hans hafa verið mjög lágar á síðustu árum að sögn sænskra fjölmiðla. Þeir segja hann hafa breytt nafni sínu skömmu áður en morðin voru framin. Hann bjó þá nærri heimili hjónanna. Hann hefur margoft flutt eftir það.

Maðurinn neitar sök.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta konan á leið í gálgann

Fyrsta konan á leið í gálgann