
Ástæðan er að starfsfólkið gerði mistök þegar ýtt var á takka á sjóðvélinni sem heitir „endurgreidd leiðrétting“ og keyrði vélin á þessu allan daginn. Þetta þýddi að þegar fólk bar greiðslukortið sitt upp að posanum, þá var upphæðin, sem það átti að greiða, lögð inn á reikning þess. Þetta þýddi því að viðskiptavinirnir fengu greitt fyrir að kaupa pítsu.
Ahmad Ziad Nouf, sonur eiganda pitsastaðarins (sem heitir Starup Pizzeria), sagði í samtali við TV2 að þegar hann kom á staðinn um kvöldið hafi hann áttað sig á þessu og hafi þá sagt við föður sinn að hann hafi gefið fólki pítsur allan daginn og látið það fá peninga að auki.
Í kjölfarið sendi pitsastaðurinn út ákall til viðskiptavina og útskýrði hvað gerðis og höfðaði til heiðarleika þeirra og hvatti þá til að koma og endurgreiða peninga sem þeir fengu greidda sem og pítsurnar.
Viku síðar hafði staðurinn fengið um helminginn af söluupphæð dagsins til baka, eða sem nemur um 140.000 íslenskum krónum. En það vantaði enn álíka upphæð.
Nú hefur verið gengið þannig frá sjóðvélinni að ekki er svo auðvelt að ýta á „endurgreidd leiðrétting“ takkann.