fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Pressan

Þessa hluti á ekki að hafa nærri beininum því þeir hafa áhrif á nethraðann

Pressan
Laugardaginn 8. mars 2025 07:30

Það er ekki sama hvað er sett nálægt beininum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Beinir er eitt mikilvægasta tækið á mörgum heimilum því hann tryggir aðgang að Internetinu. Það sama á við um vinnustaði, skóla og ýmsa aðra staði.

En það getur verið ansi pirrandi þegar netsambandið er hægt og það tekur heila eilífð, að því er virðist, að hlaða forriti niður eða horfa á streymisveitur því myndin er alltaf að frjósa.

Lítill hraði á Internetinu er eitt algengasta vandamálið sem netnotendur upplifa. Það er ýmislegt sem getur valdið þessu, allt frá þjónustuaðilanum til staðsetningar beinisins eða hvaða hlutir eru nálægt honum og trufla sendingar hans.

Meðal þeirra hluta sem trufla sendingar beinis eru:

Örbylgjuofnar sem vinna á tíðninni 2,4 GHz því þetta er sama tíðnin og margir beinar nota til að senda WiFi-merkið. Sendingar tækjanna geta skarast, sérstaklega þegar örbylgjuofninn er í gangi og er nærri beininum.

Þráðlausir símar eru ekki mikið notaðir í dag, þar er átt við aðra síma en farsíma, en þeir sem vinna á tíðninni 2,4 GHz geta truflað sendingar beinisins. Símarnir senda merki frá sér sem geta truflað beininn og rofið sendingar hans eða hægt á netsambandinu.

Málmhlutir geta lokað fyrir netsambandið og má þar nefna að ekki er skynsamlegt að staðsetja beininn nærri ísskápum, þvottavélum og eldavélum. Þess utan geta þykkir veggir, sérstaklega úr steypu eða múrsteinum, dregið úr sendistyrk beinisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?

Saga Betty og Barney Hill skók heimsbyggðina – Hvað gerðist í raun og veru?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann

Þetta getur gert kraftaverk fyrir líkamann
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ætla ekki að skera undan birninum

Ætla ekki að skera undan birninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa

Öryggissérfræðingur segir að svona gerir þú farangurinn þinn minna aðlaðandi í augum þjófa