fbpx
Laugardagur 25.mars 2023
Pressan

Bikinívaxið fór algjörlega úr böndunum – Vaknaði með skapabarm á stærð við „ruðningsbolta“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 27. janúar 2023 06:53

Aby. Mynd:@abbsofficial

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór eiginlega allt úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis þegar breski áhrifavaldurinn Aby ákvað að hjálpa vinkonu sinni við að æfa sig í að vaxa kynfæri. „Sársaukanum gleymi ég aldrei. Ég geri þetta aldrei aftur,“ segir Aby í myndbandi sem hún birti á TikTok.

Hún segir að meðhöndlunin sjálf hafi verið sársaukafull en það hafi ekki verið fyrr en tveimur dögum síðar sem vandamálin fóru að koma fram af alvöru.

„Ég fór í bað og fann svo mikinn sársauka í hægri skapabarminum svo ég bað Samúel um að skoða þetta.“

„Þegar hann skoðaði þetta sagði hann: „Elskan, það er mjög harður klumpur hægra megin.““

Hún náði sér þá í spegil og skoðaði þetta sjálf og sá það stóra blöðru.

„Ég hugsaði með mér að ég gæti bara sett smá krem á þetta og þá myndi þetta lagast. Spólum tvo daga fram og ég vakna með skapabarm á stærð við ruðningsbolta,“ segir hún.

„Hann hafði fjórfaldast að stærð og lafði niður vegna þyngdarinnar á því sem var inni í. Ég gat ekki gengið, ég gat ekki farið í nærbuxur, ekki í buxur.“

Hún var flutt í skyndi á Euston‘s University College sjúkrahúsið þar sem hún lá næstu þrjá daga.

Aby á góðri stundu. Mynd:@abbsofficial

 

 

 

 

 

 

 

 

 

„Ég var svæfð svo það væri hægt að tæma blöðruna. Ég fékk gas og súrefni svo það væri hægt að kreista hana en það reyndist ekki hægt. Hún var of stór. Þeir stungu því gat á hana og kreistu þetta út. Það versta var að þeir náðu ekki öllu.“

„Þegar ég rankaði við mér settu þeir mig í bað og sögðu að ég ætti sjálf að kreista restina út. Ég fékk Samuel til að hjálpa mér og gumsið fór út um allt. Ég sver við guð að hárið sem kom út var langt.“

Margir hafa tjáð sig um hnyttna frásögn hennar og skemmt sér yfir lýsingum hennar á þessum miklu hrakförum. Margir hafa hrósað Samuel, sem er unnusti hennar, fyrir framlag hans til að koma henni til heilsu á nýjan leik.

Aby skýrði frá hremmingum sínum í myndbandi á TikTok. Skjáskot:TikTok
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjölskyldur hneykslaðar yfir sýknudómi yfir tveimur lögreglumönnum – 135 manns létu lífið

Fjölskyldur hneykslaðar yfir sýknudómi yfir tveimur lögreglumönnum – 135 manns létu lífið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tannlæknir grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína – Færði henni blásýrusjeik til að geta byrjað nýtt líf með kollega

Tannlæknir grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína – Færði henni blásýrusjeik til að geta byrjað nýtt líf með kollega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sænsk yfirvöld hafa miklar áhyggjur – Óttast að þetta verði notað til hryðjuverka

Sænsk yfirvöld hafa miklar áhyggjur – Óttast að þetta verði notað til hryðjuverka
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kanadískur fjárfestingasjóður kaupir Pornhub

Kanadískur fjárfestingasjóður kaupir Pornhub
Pressan
Fyrir 5 dögum

Svona er hægt að þrífa örbylgjuofninn með aðeins einu efni sem er til á öllum heimilum

Svona er hægt að þrífa örbylgjuofninn með aðeins einu efni sem er til á öllum heimilum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Óhugnanlegt atvik þegar veðurfréttakonan leið út af í beinni

Óhugnanlegt atvik þegar veðurfréttakonan leið út af í beinni