Þetta var í fjölbýlishúsi í Alderley, sem er norðan við Brisbane í Ástralíu.
ABC News segir að daginn eftir hafi lögreglan skýrt frá því að líkið væri af konu. En eftir þetta hafa litlar fréttir borist af málinu því lögreglunni hefur ekki miðað mikið við rannsókn þess.
Enn hefur ekki tekist að bera kennsl á líkið eða hvernig það endaði í holrýminu vafinn inn í sængurfatnað.
Það eina sem er nokkurn veginn vitað í málinu er að konan var hvít, 155 til 165 cm á hæð og með dökkbrúnt hár. Hún notaði gleraugu og var 30 til 55 ára þegar hún lést.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hún lést en það er talið hafa verið einhvern tímann frá 2009 til 2015.
Andrew Massingham, yfirlögregluþjónn, sagði að ekki sé vitað hvort konan hafi verið myrt þar sem hún fannst eða annars staðar. Hann sagði málið „gríðarlega flókið“ og eitt stærsta verkefnið nú sé að bera kennsl á konuna.