fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Pressan

Varð eiginkonunni að bana með fílastyttu – Rifust um áfengishlaup

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 25. júní 2021 19:00

Fílastyttur þykja víða hin mesta prýði. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku sakfelldi hæstiréttur í Victoria í Ástralíu Edward Rowen, 84 ára, fyrir morð. Hann varð eiginkonu sinni að bana árið 2019 með fílastyttu eftir að hún bannaði honum að borða áfengt hlaup sem barnabarn þeirra hafði útbúið.

ABC News skýrir frá þessu. Fyrir dómi kom fram að Rowen þjáist af ágengum heilasjúkdómi, líklegast Alzheimers. Dómurinn varð því að taka afstöðu til hvort Rowen, sem gat ekki mætt fyrir dóminn vegna slæmrar heilsu sinnar, væri sakhæfur.

Það var á jóladag 2019 sem allt fór úrskeiðis þegar fjölskyldan kom saman í bænum CreswickRowen drakk þá bjór og fékk sér hlaupskot sem innihéldu vodka. Hann skellti þremur slíkum í sig og trúði ekki ættingjum sínum þegar þeir sögðu honum að hlaupið innihéldi sterkt áfengi.

Þegar heim var komið rifust hjónin út af þessu og það endaði með að Rowen réðst á eiginkonu sína, Rosalie Rowen 78 ára, með fílastyttu. Hann hljóp síðan út á götu alblóðugur. Nágranni hringdi í lögregluna og Rosalie var strax flutt á sjúkrahús þar sem hún lést skömmu síðar. Þau höfðu verið gift í 60 ár.

Þegar dómurinn var kveðinn upp sagði Lesley Taylor, dómari, að á milli klukkan 20.20 og 21.45 þetta örlagaríka kvöld hafi Rowen komið aftan að eiginkonu sinni og lamið hana ítrekað í höfuðið með fílastyttu úr tré. Hún hafi hlotið mörg högg á höfuðið. Hún sat í stólnum sínum í stofunni þegar þetta gerðist.

„Ég drap hana, þið getið tekið mig með, ég get aflplánað 20 ár,“ sagði hann þegar lögreglan kom á vettvang.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að enginn vafi léki á að Rowen hafi orðið eiginkonu sinni að bana en þar sem hann þjáist af heilasjúkdómi er ekki hægt að dæma hann í fangelsi að mati dómsins. Hann verður því í umsjá heilbrigðisyfirvalda í Victoria sem munu finna hvaða leiðir eru færar til að veita honum meðferð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu

Mörg þúsund loftsteinar gætu glatast að eilífu þar sem þeir sökkva niður í ísinn á Suðurskautinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja sig hafa fundið skýringuna á dularfullum snúningi Betelgás

Telja sig hafa fundið skýringuna á dularfullum snúningi Betelgás
Pressan
Fyrir 3 dögum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu

Berst við 4. stigs krabbamein – Yfirmaðurinn pressar á hana að koma aftur til vinnu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið

Hrútur varð hjónum að bana – Nágrönnum mjög brugðið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi