fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Pressan

Prófessor – „Við erum búin að búa til nýjan sjúkdóm og hann kemur frá bóluefni AstraZeneca“

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 15. apríl 2021 16:00

Bóluefni AstraZeneca hefur búið til nýjan sjúkdóm segir prófessorinn. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með bóluefni AstraZeneca höfum við búið til nýjan sjúkdóm. Sjúkdóm sem heitir VITT og fólk á á hættu að látast af hans völdum. Þetta segir Jens Lundgren, prófessor í smitsjúkdómafræði og sérfræðingur í bóluefnamálum.

„Kennsl hafa verið borin á nýjan sjúkdóm og tilvist hans staðfest og nú vitum við að það er bóluefnið sem veldur þessum sjúkdómi,“ sagði hann í samtali við TV2.

Sjúkdómurinn er sjaldgæfur en 1 af hverjum 40.000, sem er bólusettur með bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni, getur átt von á að fá aukaverkanir af völdum bóluefnisins. Þær aukaverkanir hafa fengið nafnið VITT sem stendur fyrir „Vaccineinduceret immun trombotisk trombocytopeni“.

Þetta kom fram á fréttamannafundi danskra heilbrigðisyfirvalda í gær þar sem tilkynnt var að Danir séu hættir að nota bóluefnið frá AstraZenece. VITT veldur því að líkaminn myndar ekki mótefni gegn COVID-19 en myndar þess í stað mótefni gegn blóðflögum sem sjá um storknun blóðs. Mótefnið lætur blóðflögurnar þjappa sér saman í klumpa sem síðan valda blóðtappa og þeir geta orðið fólki að bana. Tengsl AstraZeneca og VITT hafa verið staðfest af dönskum, norskum og þýskum vísindamönnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis

Ný lög í Rússlandi sem eiga að vernda rússneska ríkisborgara erlendis
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls
Pressan
Í gær

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala