fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Pressan

25 hafa látist af völdum mikilla snjóa í Evrópu – Von á meiri snjó

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 14. janúar 2019 06:15

Austurrískur skíðastaður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur snjóað í austurrísku Ölpunum frá áramótum sem og í sunnanverðu Þýskalandi og Sviss. Ekki er útlit fyrir uppstyttu á næstunni því enn meiri  snjókomu er spáð næstu daga. Að minnsta kosti 25 hafa látist af völdum snjóa en mörg snjóflóð hafa fallið og snjóflóðahætta er víða mikil.

Samkvæmt upplýsingum frá austurrísku veðurþjónustunni ZAMG mældist úrkoman í Hochfilzen í Týról 311 sm frá nýársdegi þar til síðasta fimmtudag. Víða annarsstaðar hafa rúmlega tveir metrar af snjó fallið það sem af er ári.

Veðurspár gera ráð fyrir að allt að einn metri til viðbótar af snjó geti fallið í Ölpunum í dag og á morgun. Ef það gengur eftir verður úrkoman það sem af er ári allt að þrír-fjórir metrar víða. Samhliða þessari miklu snjókomu eykst snjóflóðahættan einnig.

14 af þeim 25 sem hafa látist létust af völdum snjóflóða, þar af 8 skíðamenn í austurrísku fjöllunum. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þau banaslys sem vitað er um og fjölmiðlar hafa skýrt frá það sem af er ári.

Þann 5. janúar lést tvítug þýsk kona í snjóflóði við Teisenberg í Bæjaralandi í Þýskalandi.

Þann 6. janúar létust tveir þýskir skíðagöngumenn í tveimur aðskildum snjóflóðum í Vorarlberg í Austurríki. Einnig lést þýsk kona eftir að henni hlekktist á á snjóbretti sínu og lenti á kafi, með höfuðið á undan, í snjó. Slóvenskur skíðamaður lést í Pongau nærri Salzburg.

Þann 7. janúar  fundust tveir fjallgöngumenn látnir á Christalliera fjallinu í ítölsku Ölpunum. 44 ára karlmaður lést í Wackersberg í Þýskalandi þegar hann varð fyrir trjágreinum sem létu undan þungum snjó og brotnuðu.

Þann 8. janúar fundust 28 ára karlmaður 23 ára kona látin nærri Salzburg í Austurríki en þau höfðu verið á göngu á snjóþrúgum. Tveggja annarra er saknað.

Þann 9. janúar lést 13 ára piltur í snjóflóði í St Anton am Arlberg í Austurríki þar sem hann var á ferð með fjölskyldu sinni. Í Slóvakíu lést 37 ára karlmaður í snjóflóði í Mala Fatra fjöllunum.

Fjórir skíðamenn létust af völdum snjóflóðs í Tamokdalnum í norðurhluta Noregs. Fórnarlömbin voru 29 ára sænsk kona og þrír finnskir karlmenn, 29, 32 og 36 ára.

Þann 10. janúar lést 9 ára drengur í Aying nærri München í Þýskalandi þegar hann varð fyrir tré sem lét undan snjóþunga.

Þann 11. janúar létust tveir snjóbrettamenn í snjóflóði nærri Bansko, sem er stærsti skíðastaður Búlgaríu. 48 ára karlmaður lést í sunnanverðu Þýskalandi þegar ísilögð á gaf sig undan snjómoksturstæki hans.

Þann 12. janúar létust þrír þýskir skíðamenn í snjóflóði nærri Lech am Arlberg í Austurríki. Eins til viðbótar er saknað.

Þann 13. janúar létust tveir starfsmenn yfirvalda í frönsku Ölpunum. Þeir létust í sprengingu þegar þeir voru að undirbúa sig undir að sprengja snjóhengjur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?

Hvað verður um heilann úr OJ Simpson?
Pressan
Í gær

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða

Ráðagóðir menn björguðu sér með aðstoð pálmablaða
Pressan
Í gær

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur

Í þessu landi seljast fleiri fullorðinsbleiur en barnableiur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV

Ný rannsókn bendir til hugsanlegrar lækningar á HIV
Pressan
Fyrir 3 dögum

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga

Búrhvalir nota risastórar kúkasprengjur til að bjarga sér frá árásum háhyrninga
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu

Gleymd gögn frá Appologeimferðunum varpa ljósi á áður óþekkta atburði á tunglinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt

Hafði setið í fangelsi í 21 ár – Sá endursýndan sjónvarpsþátt fyrir tilviljun og gat sannað sakleysi sitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum

Ofbeldisverk eru mikið vandamál í frönskum skólum