fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Ritstjórn Pressunnar
Föstudaginn 5. júní 2026 20:00

Alþjóðlega geimstöðin. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geimförum um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni hefur verið gert að undirbúa sig fyrir að yfirgefa geimstöðina vegna súrefnisleka. Bandarískir geimfarar eiga að vera í skjóli í sínu geimfari á meðan rússneskir geimfarar gera við súrefnislekann.

Samkvæmt Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, var fjórum geimförum í morgun gert að klæða sig í geimbúninga og fara inn í geimfarið Drekann ef ske kynni að þeir þyrftu að yfirgefa stöðina. Þeir hafa nú yfirgefið Drekann og er nú fylgst vel með framvindu mála.

Súrefnisleki hefur verið vandamál á stöðinni síðustu ár en það er fyrst núna sem það er talið nógu alvarlegt að það geti stefnt geimförunum í hættu. Rússnesku geimfararnir eru samkvæmt rússnesku geimferðastofuninni, Roscosmos, nú að vinna að viðgerðum í hluta gagna þar sem súrefnið lekur hvað mest.

Hvorug geimferðastofnunin hefur gefið út nákvæmlega hvað felst í viðgerðunum fyrir utan að þær séu miklar. Síðasta mánudag vakti það athygli NASA að súrefnislekinn hafi skyndilega farið úr einu pundi á dag í tvö.

Alþjóðlega geimstöðin tók til starfa árið 1998 og var hönnuð til fimmtán ára. Samkvæmt áætlun á að taka hana úr notkun árið 2030, þá verða einhverjir hlutar hennar nýttir í nýja geimstöð á meðan stöðin sjálf verður látin falla til jarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land

Pútín hefur í hótunum – Reiðubúinn til að ráðast á annað land
Pressan
Fyrir 2 dögum

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf

Útskriftarferð fjölskyldunnar breyttist í martröð á föstudaginn þegar eldri sonurinn hvarf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað

Brást illa við þegar eiginkonan tilkynnti að hún vildi skilnað
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína

Sviðsetti beina útsendingu á YouTube á meðan hann myrti þungaða kærustu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Heimilishjálp á Kanaríeyjum stal skartgripum af fjölskyldu fyrir vel á aðra milljón króna

Heimilishjálp á Kanaríeyjum stal skartgripum af fjölskyldu fyrir vel á aðra milljón króna