
Julie Nicole Mott, 25 ára gömul kona frá Texas, lést árið 2015. Ekki var um saknæma háttsemi að ræða heldur hörmulega afleiðingu arfgengs sjúkdóms sem nefnist á ensku cystic fibrosis (CF), eða slímseigjusjúkdómur.
Sjúkdómseinkennin koma fyrst og fremst fram í lungum en þeir sem glíma við CF framleiða seigara slím en eðlilegt er og getur það stíflað minnstu greinar loftveganna. Eins er þetta seiga slím kjörinn bústaður fyrir bakteríur og veldur því gjarnan sýkingum.
Julie greindist með sjúkdóminn aðeins 2ja ára gömul og tapaði baráttunni við hann 23 árum síðar.
Andlát Julie var mikið áfall fyrir fjölskyldu hennar, en raunum þeirra var þó ekki lokið og er það ekki enn í dag því eftir að Julie hvarf nokkrum dögum eftir að hún lést og hefur ekki enn fundist rúmum áratug síðar.
Fjölskylda Julie kom saman þann 15. ágúst til að kveðja. Þann dag hefði Julie átt að fagna 26 ára afmæli sínu en þess í stað lá hún hreyfingarlaus, látin í kistu á útfararstofu. Meðal gesta var fyrrverandi kærasti hennar, Bill Wilburn, en Julie hafði hætt með honum tveimur árum áður.
Eftir að minningarathöfninni var lokið fór fólk að týnast heim. Starfsmenn útfarastofunnar biðu þolinmóðir og ætluðu svo að ganga frá líkinu fyrir líkbrennsluna sem átti að fara fram morguninn eftir. Wilburn var loks einn eftir og fór ekki fyrr en starfsmenn ráku hann út.
Starfsmenn gerðu sitt, gengu frá eftir minningarathöfnina og gerðu líkið tilbúið. Síðan kveiktu þeir á öryggiskerfinu, læstu dyrunum og fóru heim. Julie lá þá í kistu sinni á gangi útfararstofunnar.
Þegar starfsmenn sneru aftur morguninn eftir var kistan tóm. Innsigli á kistunni hafði verið rofið og hjarirnar skemmdar. Engin merki voru þó um innbrot og öryggiskerfið hafði hvorki verið aftengt né farið í gang. Julie var horfin.
„Ég brest auðveldlega í grát í tíma og ótíma,“ sagði móðir Julie, Sharlotte, í viðtali árið 2018. „Það er mikill harmur að vita ekki hvar hún er niðurkomin. Það hefur ekkert breyst.“
Sharlotte var ekki upplýst um hvarfið fyrr en hún hafði samband við útfararstofuna til að vitja skartgripa dóttur sinnar og annarra persónulegra eigna.
Lögreglan beindi fljótt spjótum sínum að Wilburn sem tók því illa. Hann fór að áreita alla sem áttu aðkomu að málinu. Svo dæmi séu tekin hringdi hann rúmlega 200 sinnum í útfarastofuna og krafðist þess að fá að vita hvar Julie væri niðurkomin. Eins hringdi hann dag og nótt í fjölskyldu Julie. Tæpu ári eftir hvarfið var hann handtekinn fyrir utan útfarastofuna en hann hafði ítrekað reynt að brjótast þangað inn.
Rannsókn lögreglu leiddi svo í ljós að ekki var allt með felldu hjá útfarastofunni. Verktakar sem höfðu starfað fyrir útfarastofuna höfðu nánast ótakmarkað aðgengi að Mission Park útfarastofunni. Þessir aðilar voru með lykla, lykilorðið að öryggiskerfinu og gátu því komið og farið eins og þeim sýndist. Einn þessara verktaka var fyrirtæki að nafni Beyer & Beitel sem hafði verið kært eftir að fyrirtækið ruglaði saman tveimur líkum aldraðra kvenna. Mission Park hafði eins verið kært í á annan tug mála á árunum 2000-2015, þar með talið fyrir að hafa ruglað saman líkum.
Foreldrar Julie stefndu Mission Park og móðurfyrirtæki útfarastofunnar vegna grófrar vanrækslu. Dómsátt var gerð í málinu árið 2020 sem fól í sér skaðabætur upp á 8 milljónir bandaríkjadala, eða um milljarð króna.
Þrátt fyrir þetta og umfangsmikla leit lögreglu hefur Julie aldrei fundist.
En hvað með Wilburn? Fjölskylda Julie var lengi sannfærð um að hann hefði rænt líkinu. Þau sögðu hann hafa haft Julie á heilanum og að hann hafi beitt hana umsáturseinelti í aðdraganda andlátsins. Eins hafi hann stöðugt verið að áreita hana á meðan hún lá fyrir dauðanum á sjúkrahúsi.
Wilburn sagðist þó hafður fyrir rangri sök. Hann hafði sjálfur samband við news.com.au árið 2016 þar sem hann kvartaði undan framkomu fjölskyldunnar í sinn garð. Fjölskyldan hafi reynt allt til að halda honum frá Julie og jafnvel hótað því að henda honum út úr jarðarförinni.
„Þetta er enn bara óraunverulegt fyrir mér. Árum saman hafði ég undirbúið mig andlega undir andlát hennar, en ekkert gat undirbúið mig undir það að vera rændur tækifærinu að fá að syrgja hana.“
Wilburn þvertók fyrir að hafa rænt líkinu.
Lögregla taldi eins ólíklegt að útfarastofan bæri ábyrgð. Hér væri um líkræningja að ræða. Ræninginn eða ræningjarnir hafi gengið rösklega til verka og vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera.
Nú hefur Julie verið saknað í rúman áratug og fjölskyldan hennar hefur ekki fengið lúkningu, ekki einu sinni eftir að þau buðu fram rúmlega tveggja milljón króna fundarlaun.